Bækur sem höfðu áhrif á mig í menntaskóla
Hér er listi af nokkrum þeim bókum sem ég las í menntaskóla (og reyndar sumar fyrr) og höfðu hvað mest áhrif á mig á þeim viðkvæma aldri:
- Steppenwolf - Hermann Hesse (í enskri þýðingu frá Penguin)
- Enten-Eller - Søren Kierkegaard
- L’Homme Révolté - Albert Camus (Í enskri þýðingu sem The Rebel)
- Also Sprach Zarathustra - Friedrich Nietzsche (í enskri þýðingu sem Thus Spoke Zarathustra)
- Zen and The Art of Motorcycle Maintenance - Robert M. Pirsig
- The Electric Kool-Aid Acid Test - Tom Wolfe
- One Flew Over The Cuckoo’s Nest - Ken Kesey
- Bréf til Láru - Þórbergur Þórðarson
- Vefarinn mikli frá Kasmír - Halldór Kiljan Laxness
- Ecce Homo - Friedrich Nietzsche (í enskri þýðingu)
- The Divided Self - R.D. Laing
- Jenseits von Gut und Böse - Friedrich Nietzsche (í enskri þýðingu)
- Hamlet - William Shakespeare
- The Tempest - William Shakespeare
- Manfred - George Gordon, Lord Byron
- In Catilinam - M. Tullius Cicero (á Latínu!)
- Sonnets - William Shakespeare
- Fornar ástir - Sigurður Nordal
- Stranger in a Strange Land - Robert Heinlein
- Siddhartha - Hermann Hesse (í enskri þýðingu)
- Narziss und Goldmund - Hermann Hesse (í enskri þýðingu)
- Lennon Remembers - Jann Wenner
- El libro de arena - Jorge Luis Borges (á ensku sem The Book of Sand)
- Egils Saga - Snorri Sturluson
- Labyrinths - Jorge Luis Borges (safn smásagna í enskri þýðingu)
- Complete Works - Oscar Wilde
- Man and Superman - George Bernard Shaw
- Братья Карамазовы - Fjodor Dostoéfskí (í enskri þýðingu sem The Brothers Karamazov)
- Inferno - August Strindberg (sökum misskilnings, í sænskri þýðingu)
30. nóvember 2006 klukkan 20:05
ekki ætlarðu að segja að þetta hafi verið námsefni allt!!!
30. nóvember 2006 klukkan 21:01
Ræða Ciceros gegn Catilinu var það eina af þessu sem var námsefni. Sömuleiðis minnir mig að Fornar ástir eftir SNordal hafi verið námsefni, eða amk var imprað á því í bókmenntaáfanga sem Jóhanna Sveinsdóttir kenndi mér og ég hef ávallt elskað hana fyrir síðan.
Annars finnst mér að þetta gæti verið ágætis fjórðungur af menntaskólanámi.
30. nóvember 2006 klukkan 21:30
Ja.. það er allt annað mál þá. Þá er vel hægt að lesa allt þetta. Þ.e. ef það er ekki námsefni. Hef aldrei þolað þegar ætlast var til að maður leggði sama skilning í bækur og einhver íslenskukennari… eða ensku- eða dönskukennari.
1. desember 2006 klukkan 10:03
Hmmm, hvað með Anarchist Cookbook?
1. desember 2006 klukkan 10:22
Já, ég gleymdi henni. Það var þar sem ég t.d. las um Heinlein, svo ég fór að lesa hann. Svo voru rit sem ég las í 8. og 9. bekk eins og Underground Reader (samansafn greina úr bandarískum stúdentablöðum frá 1965-1971), The Doors of Perception eftir Huxley og Psychedelics Encyclopedia. Ég vildi bara óska að ég hefði kynnst Rimbaud á sama tíma, það hefði verið til að fullkomna það.
Bóklestur getur af sér meiri bóklestur. Það var minnst á Steppenwolf í einhverri grein í Underground Reader svo ég las þá bók. Þar var minnst amk tvisvar á Nietzsche. Í formála ensku þýðinganna var minnst á mörg merkisrit sem ég las síðan.
Manfred var merkilegt rit, ég sá það í hillu hjá Birgi, manninum hennar mömmu, og tók hana eignarnámi um stund. Þessi bók var merkileg fyrir þær sakir að þetta var samhliða texti með frumtexta Byrons vinstra megin á opnu, en þýðingu Matthíasar hægra megin. Útgáfa þessi hefur eflaust átt sinn þátt í hinni víðfrægu ferskeytlu Skundar hann úr skóla heim / skáldlegur í fasi / ber hann svip af báðum tveim / Byron og Matthíasi. Síðar eignaðist ég mitt eigið eintak, en Erla Þórdís Jónsdóttir heitin gaf mér sitt eintak eitt sinn í afmælisgjöf.
1. desember 2006 klukkan 11:22
Svo er nú synd að sleppa köppum á borð við Robert Crumb og Gilbert Shelton…
1. desember 2006 klukkan 13:54
Já, rétt. Sérstaklega Crumb. Þótt Shelton hafi verið fyndnari á sínum tíma, þá situr Crumb meira eftir í manni.
2. desember 2006 klukkan 10:21
ég hjó eftir því að það vantar Agöthu Christie þarna á listann…og hvergi sá ég Ísfólkið..
2. desember 2006 klukkan 16:59
thíhí… Elías er nú ekki nörd fyrir ekki neitt
Agatha Christie og Ísfólkið 
6. desember 2006 klukkan 11:45
Sæll. Ég þekki þig ekki, en rambaði hérna inn einhvernvegin og vildi taka það fram að þetta er æðislegur listi.
8. desember 2006 klukkan 15:56
Nú þurfum við að fara að stofna íbúafélag Mánagötu og halda hverfishátíð!
8. desember 2006 klukkan 16:05
Hey, flýgur fiskisaga! Hver sagði þér þetta?