Archive for nóvember, 2006

Teflt við ofviðrið

föstudaginn, nóvember 10th, 2006

Eftir að hafa lesið kafla 3-5 af Gunnlaugs sögu Ormstungu fyrir valkyrjuna hana yngri dóttur mína, en hún fór óvenju seint að sofa í kvöld, tók ég regnhlíf mína og gekk frá Eskihlíð þvert yfir Skólavörðuholt og niður á Mokka og fékk mér te. Í þetta sinn þurfti ég að vanda mig heilmikið til að regnhlífin snerist ekki í höndum mér, en að lokum komst ég á áfangastað nær alveg þurr.

Ég hitti Parísardömuna, Gvendarbrunn og Uppglenning. Þau fóru skömmu síðar. Ég drakk teið mitt og horfði á fólkið í kring. Fyrir framan mig voru tvær lágþýskar stúlkur af tyrkneskum ættum og var önnur þeirra ein fegursta kona sem ég hef augum litið. Úti í horni sat Bobby Fischer að spjalla um tölvur við mann í Skjálfta 2004 bol. Þegar ég var að klára teið var Bobby búinn að spyrja Skjálftamanninn hvort hann hefði heyrt um Turing-prófið og það leit út fyrir að Skjálftamaðurinn ætlaði að falla á því þegar þeir fóru að tala um Terminator-myndirnar og heimsmeistarinn lýsir þeirri skoðun sinni að leitarvélarnar geti getið af sér gerfigreind. Þegar ég er að fara út og er búinn að fara í frakkann og er að fara að stinga regnhlífinni út um dyragættina segi ég við þá “Windows Vista will become Skynet”. Þeir spyrja báðir út í Skynet og ég svara “The network which became sentient in the Terminator films”. Augu Bobbys stóðu á stilkum.

Ég er ekki frá því að stormurinn hafi verið ívið meiri á heimleiðinni. Ég vöknaði um hnén, en hvergi annars staðar.

Forverar

miðvikudaginn, nóvember 8th, 2006

Blogmonk

I’m Gonna Dress In Black

sunnudaginn, nóvember 5th, 2006

I’m walking the long road to Georgia
Yeah the long road that’s takin’ me back
Gonna live in the hills far away in the hills
And I’m gonna dress in black

Way high in the hills in Georgia
Gonna live in a old tin shack
Nobody I’ll see and no one will see me
And I’m gonna dress in black

‘Cause I went down big city
Had money, had money in my sack
Found a girl so fine, thought she was mine
But she left me without a shirt to my back

Way out in the hills in Georgia
I’ll live in my old tin shack
I’ll think of the time that woman was mine
And I’m gonna dress in black

Yeah

Gengið gegn nauðgunum

laugardaginn, nóvember 4th, 2006

Ég var að fá SMS frá eldri dótturinni:

Korter i midnætti: gengid gegn naudgunum fra Hlemmi

Miðað við áætlað veður verður þetta sennilega frekar “fokið gegn nauðgunum”. Þó held ég að ég reyni að vera þarna og sýna móralskan stuðning.

Skylmst við storminn

laugardaginn, nóvember 4th, 2006

Í dag gekk ég í grenjandi rigningu gegnum bæinn og síðan út á Mela og þaðan heim í Hlíðar gegnum Þingholtin. Allt án þess að fá á mig dropa, enda var ég með regnhlífina mína. Undir það síðasta þurfti ég að einbeita mér gríðarlega til að missa hana ekki upp í vindinn.

Kominn vetur

laugardaginn, nóvember 4th, 2006

Ég svaf óeðlilega lengi í nótt. Þegar ég vaknaði var rödd mín orðin áttund dýpri en venjulega og ég hafði ekki lyst á að fara að hjóla á þrekhjólinu.

Ég held það sé kominn tími til að leggjast í vetrarhíði.