Gleðileg jól!
þriðjudaginn, desember 26th, 2006Þetta hafa verið gleðileg jól hjá mér og ég vona að þau hafi verið það hjá ykkur öllum hinum. Íbúðin venst ótrúlega vel og nú finnst mér eins og ég hafi alltaf búið þarna. Ég stefni á stórhreingerningu nú á eftir þegar þessi pistill hefur verið skrifaður, enda hef ég bara sóðað til síðan innflutningspartíið gekk yfir.
Í gær fór ég í mat til mömmu. Allir komu með eitthvað og ég kom með 32 litlar skálar af möndlubúðingnum mínum. Kvöldið áður var ég í mat hjá Önnu systur minni og Kjartani manni hennar. Ég kom síðan við hjá móður Erlu og labbaði með Erlu og Skarpa á nýja staðinn þeirra og tók þar jólagjöfina mína. Eftir það fór ég heim og lagaði möndlubúðinginn og sósuna, en það tók mig heila sex tíma samfleytt.
Ég fékk óboðinn gest í morgun. Hann hefur eflaust oft komið áður, enda hef ég heyrt í honum, og svo sá ég hann líka fara í gær. Það var sem sagt köttur sem labbaði inn um baðherbergisgluggann, en þangað virðist hann hafa trítlað langa leið utan á húsinu. Svo skemmtilega vildi til að Brynhildur dóttir mín var fyrst til að sjá hann innandyra.
Nágranni minn bankaði upp á. Hann er að fara að selja íbúðina sína, sem er beint á móti minni og er nákvæmlega eins nema bara spegilmynd, með flottara baði en ekki eins flottu eldhúsi, viðarparketi á gólfum. Gamalt píanó sem þarfnast stillingar fylgir.