Í Bloggmýrinni

Ég var að skrifa undir gagn-gagn-gagntilboð í dag. Ég var sum sé að festa kaup á íbúð og fæ hana afhenta við undirritun kaupsamnings, sem á að verða ekki síðar en 22. desember. Hún er að Mánagötu, ekki mjög langt frá Þórdísi og bara í næsta húsi við Stefán. Ég legg til að nafni þessa hverfis verði breytt og hún kölluð Bloggmýri.

24 svör við færslunni “Í Bloggmýrinni”

  1. Þá sagði Harpa:

    Til hamingju með fjárfestinguna!

  2. Þá sagði hildigunnur:

    frábært :-) Styð tillögu um nafnbreytingu…

  3. Þá sagði Barbie:

    Vá en yndælt! Til haaaaaamingju! Innflutningsparty??

  4. Þá sagði Fríða:

    :) til hamingju… já, hvað með innflutningspartý?

  5. Þá sagði Elías:

    Þið eruð boðnar í innflutningspartíið, en dagsetningin er enn á huldu.

  6. Þá sagði Fríða:

    Hahaha :) þú gerir þér vonandi grein fyrir því að svona landsbyggðarpakk eins og ég heimtar að það sé tekið tillit til veðurfars, atvinnuástands úti á landi og álíka þegar svona er planað.

  7. Þá sagði Barbie:

    O en æði, hlakka til. Hvort langar þig í útsaumaða mynd af skútu eða smyrnað veggteppi af sólarlagi?

  8. Þá sagði Elías:

    Þú ræður. Hverjir aðrir ættu að kíkja í þetta innflutningspartí? Aðrir sem hafa kommentað hér?

  9. Þá sagði lindablinda:

    Það er dónaskapur að tala um innflutningspartý og ætla svo að skilja útundan……:-)

  10. Þá sagði Harpa:

    Aldrei að vita nema maður myndi demba sér í innfluttningspartý svona ef maður ætti leið í bæinn á annað borð. Maður hefði þá allavega tilefni :-)
    Hvernig litist þér á útsaumaðan hestshaus í innfluttningsgjöf? hahahahahaha

  11. Þá sagði Systa:

    flott hjá þér, þá er hægt að koma við á nokkrum stöðum á leið úr eða í Friðarhús

  12. Þá sagði hildigunnur:

    flæddi nokkuð inn í íbúðina í fyrrinótt? :-o

  13. Þá sagði Elías:

    Linda: auðvitað verður enginn skilinn útundan.
    Harpa: mun minna mig á The Godfather.
    Systa: já, ég hef verið að uppgötva að ég þekki fólk alls staðar í kring.
    Hildigunnur: ég efast um það, enda er hún á fyrstu hæð.

    Ég hafði upphaflega verið að leita að kjallaraíbúð, enda bjóða þær upp á fleiri möguleika fyrir kattahald. Þessi bara leit svo vel út og er staðsett svo skemmtilega að ég gat ekki staðist hana.

    Mig blóðlangar til að halda innflutningspartý frekar fyrr en síðar, hvaða dagur myndi helst henta ykkur?

  14. Þá sagði Barbie:

    Hvenær flytur maðurinn??

  15. Þá sagði Elías:

    Tjah, ég fæ afhent 22. Meiningin var að flytja inn helsta dótið samdægurs og síðan mjatla restinni smám saman.

  16. Þá sagði hildigunnur:

    uss, kettir komast alveg inn í fyrstuhæðaríbúðir :-) Hlýtur að vera hægt að finna út úr því…

  17. Þá sagði hildigunnur:

    og ekki 28. des fyrir innflutningspartíið!

  18. Þá sagði baun:

    til hamingju Elías:)

  19. Þá sagði Fríða:

    Hérna.. Elías.. ertu nokkuð með síu á kommentin þín þannig að aðeins konur geti kommentað? *-)

  20. Þá sagði Elías:

    Nei, þetta er einhver ótrúleg tilviljun!
    Ég sver það, ég hef ekki hugmynd um hvað allar þessar konur eru að gera hér! ;-)

  21. Þá sagði Miss G:

    Ekki svona lúmskur. Ég fékk dreifibréf frá þér.

  22. Þá sagði HT:

    Þetta gæti orðið skondið partí, Elías í Hareminu…

  23. Þá sagði Dóri:

    Hvar færðu alla þessa peninga? Ertu í innflutningi?

  24. Þá sagði Elías:

    Heldurðu að ég kaupi íbúðir fyrir vasapeninga?

    Það vill svo til að 1) ég á aðra íbúð fyrir sem hefur hækkað mikið í verði síðan ég keypti hana 2) ég hef alltaf staðið í skilum í bönkum, þótt það hafi þýtt að ég hafi aldrei getað leyft mér neitt sem fólk á mínum aldri og í svipaðri stöðu hefur ráð á 3) ég á varla annars úrkosta, enda er leigumarkaðurinn þannig að það kostar meira að búa í rottuholu sem maður getur misst hvenær sem er með skömmum fyrirvara heldur en að kaupa sitt eigið.