Samningur og afhending

Ef ég verð ekki fyrir loftsteini eða dett skyndilega niður með hjartaáfall mun ég verða íbúðareigandi á morgun. Ég er reyndar íbúðareigandi fyrir, en ég get eiginlega ekki búið þar lengur, af ástæðum sem ættu að vera orðnar kunnar lesendum þessarar síðu.

Ég leiddist líka út í það glapræði að kaupa áður en ég sel. Það versta sem getur gerst er að ég verð þræll bankakerfisins til æfiloka, s.s. það mun engin breyting verða á mínum högum frá því sem orðið er.

Ég held að ég ætti að fara út í stærri hluti. Kannski ætti ég að biðja bankann um að fjármagna kaup á t.d. Time-Warner eða Universal Studios eða einhverju þannig?

9 svör við færslunni “Samningur og afhending”

  1. Þá sagði Barbie:

    Þú ert bara æði. Svona er að vera fullorðinn. Elías - orðinn stór.

  2. Þá sagði HT:

    Já hamra járnið meðan það er heitt, hvernig væri að kaupa Micro$soft og loka svo sjoppunni, þessir bankar á Íslandi hafa nú klofið annað eins heyrist mér.

  3. Þá sagði Kjósandi:

    Selur ofan af konunni og börnunum? Þú ert eins og Scrooge hjá Dickens.

  4. Þá sagði Barbie:

    Altaf gaman þegar fólk er svona ljómandi leiðinlegt. Hressandi.

  5. Þá sagði hildigunnur:

    nákvæmlega! Leiðindapúki.

    til hamingju með nýju íbúðina, vonandi selst sú gamla sem fyrst og þær fá einhverja fína.

  6. Þá sagði Elías:

    Ég er fluttur inn.

  7. Þá sagði Silja:

    og tókst að blogga á fyrsta degi, geri aðrir betur! Til hamingju og góða skemmtun á dansleiknum á morgun.

  8. Þá sagði Kalli:

    Maður er ekki fluttur inn fyrr en nettengingin er komin.

    Til hamingju, gleðileg jól og blússandi góða skemmtun.

    Vonandi lifir íbúðin innflutninspartíið af :)

  9. Þá sagði hildigunnur:

    leiðinlegt að komast ekki :-( Var ekki gaman?

Leggðu orð í belg