Dægrastytting
Það er fátt sem mér leiðist meira en að bíða í biðröðum í bönkum. Í gær keyrði um þverbak er ég þurfti að bíða í hálftíma. Ég var alvarlega farinn að hugsa um að stofna til kórsöngs meðal langþreyttra viðskiptavina: „Þið hérna syngið ‚úgatsjaka úgga úgga úgatsjaka úgga úgga úggatsjaka‘ og svo framvegis, byrja núna einn, tveir, þrír fjór … I can’t stop this feeling, deep inside of me …“
Sem betur fer tókst mér að halda aftur af mér áður en röðin kom að mér.
Eða hefði ég átt að láta undan freistingunni?
4. janúar 2007 klukkan 16:02
Ég mana þig til að fara aðra ferð í bankann og láta verða af þessu.
Annað svona hópalag er the lion sleeps tonight: úíúíjúhúíúí fyrir einn hóp og vimmaveivimmavei fyrir hinn hópinn.
Ég treysti því að fá fréttir af þessum atburðum fljótlega.
4. janúar 2007 klukkan 16:03
Það gæti verið nógu gaman að prófa hvort dans- og söngvamyndadæmið virkar í Alvörunni, þ.e.a.s. þegar hetjan brestur í söng og það kemur í ljós að allir viðstaddir kunna textann með röddun og alles, að viðbættri flókinni kórerógrafíu
4. janúar 2007 klukkan 18:47
já
5. janúar 2007 klukkan 9:46
Ég sé að baunin væri gráupplögð í hlutverk Yvonne Búrgundarprinsessu eftir Witold Gombrowicz, skyldi einhver fá þá flugu í höfuðið að setja það upp.
Hún þegir heilt leikrit og segir svo já.
5. janúar 2007 klukkan 15:26
var nú bara að svara pent spurningu sem varpað var fram af höfundi
8. janúar 2007 klukkan 2:02
Láta vaða & syngja með skánskum hreim…
Z.
12. janúar 2007 klukkan 22:29
bankar ættu náttúrulega að hafa skemmtikrafta sem sjá viðskiptavinum fyrir álíka skemmtun. Allavega svona fyrstu daga mánaða þegar raðir eru hvað lengstar.
Það væri kannski ekki vitlaust að byrja á að syngja eitt lag einn til og meta svo eftir viðbrögðum hvort fólk sé í fíling til að taka lagið saman (t.d. ef maður fær lófatak þá getur maður sagt, „takk takk, fyrir næsta lag vantar mig aðstoð frá ykkur. Ég ætla að skipta ykkur í tvo hópa. Þeir sem eru með biðraðarnúmer sem er slétttala syngið: „úgga sjaka úgga úgga úggasjaka“ þeir sem … “ ).
Svo er náttúrlega sá ég spóa og fleiri keðjusöngslög framkvæmanleg…