Nýtt ár, nýtt líf
Ég vil óska öllum vinum og kunningjum nær og fjær gleðilegs nýs árs.
Þetta nýja ár hugnast mér vel. Ég elska íbúðina mína og þrátt fyrir frekar slæma fjárhagsstöðu þá er ég mjög bjartsýnn á framtíðina.
Hvernig stendur eiginlega á því að í hvert sinn sem ég er hvergi nálægt tölvu þá fæ ég frábærar hugmyndir um bloggfærslur, en aldrei finn ég neinar hugmyndir þegar ég sit við tölvuna sem eru það áleitnar að ég verði að skrifa um þær?
Undanfarna þrjá daga hef ég eldað það sama í matinn. Hér á eftir fer uppskriftin:
Svínakjöt í ostrusósu með engifer og chili að hætti Elíasar:
- ¼ bolli af sólblómaolíu
- 150 g saxaðir sveppir
- 1 stór og sterkur chili (eða margir litlir eftir smekk)
- 1 sneið úrbeinaður svínahnakki
- 75 g ferskur engifer
- ¼ bolli af ostrusósu
- hálfur laukur eða tveir vorlaukar
- einn bolli af vatni
Uppskriftin er fyrir einn eða tvo. Berist fram með hrísgrjónum.
Hitið olíuna mjög vel á pönnu eða í wok. Steikið sveppina. Saxið chiliinn niður (ég notaði habañera chili, en hann er ótrúlega sterkur og með smá rósakeim) og látið út í. Saxið svínakjötið niður í 3 mm x 2 cm sneiðar. Þegar sveppirnir eru orðnir vel steiktir, bætið þá svínakjötinu út í. Saxið engiferinn niður í smátt og bætið út í þegar svínakjötið er orðið vel steikt. Hrærið og brasið. Hellið ostrusósunni yfir og hrærið vel og brasið. Setjið saxaðan lauk út á og láta hann steikjast smá. Blandið vatni saman við eftir smekk. Berið fram með hrísgrjónum.
Hrísgrjónin eru löguð á eftirfarandi hátt:
Einn bolli af hrísgrjónum er látinn í pott og tveir bollar af vatni. Þetta er sett á hæstu suðu, en þegar fer að bullsjóða er slökkt á hellunni áður en sýður upp úr, hlemmur settur á pottinn og hann látinn standa í kortér.
Ég held að ástæðan fyrir því að ég hef haft það sama í matinn í þrjú skipti sé sú að þegar maður kaupir svínahnakka í Bónus þá fær maður þrjár sneiðar í pakka.
4. janúar 2007 klukkan 8:39
góð uppskrift.
ætla að nappa henni.
en ég skil þetta með bloggdæmið. ég er alltaf að lenda í þessu sama.
4. janúar 2007 klukkan 8:51
Reyndar slumpaði ég bara á magnið, ég mæli sjaldnast hráefnin.
4. janúar 2007 klukkan 11:10
Hljómar vel. Eitthvað sérstakt merki af ostrusósu?
4. janúar 2007 klukkan 11:26
Einhverja austurlenska. Ekki Blue Dragon eða þess háttar. Mér hefur sýnst að reglan sé því ódýarari, því betri. Sama regla virðist gilda með bacon í íslenskum kjörbúðum.
Önnur regla varðandi bacon er að ef það er ekki hart í kæliborðinu þá inniheldur það sennilega of mikið vatn (og mun því skreppa saman í ekki neitt við steikingu).
9. janúar 2007 klukkan 7:26
Uhh, það er hægt að elda fleiri rétti úr svínahnakka.
9. janúar 2007 klukkan 9:53
Auðvitað. Ég er samt allt of obsessívur til að láta það gerast.