Halastjarnan

Atburðir undanfarinna daga hafa æ ofan í æ minnt mig á hið stórbrotna meistaraverk Tove Jansson, Halastjörnuna, eða Kometen Kommer, eins og hún heitir á frummálinu.

Eins og bókmenntalega sinnað fólk veit, þá fjallar hún um voveiflega atburði í Múmíndal þá er halastjarna sést á himni og allt líf eins og við þekkjum það er á barmi útrýmingar.

Við hér í Tæknigarði gerum samt okkar besta til að bjarga því sem bjargað verður.

15 svör við færslunni “Halastjarnan”

  1. Þá sagði Kristín:

    Hún sást afar vel hér in the cooontrí. Falleg og alls ekkert ógnvænleg. Nú ekki nema maður detti í að spá í hvað myndi nú gerast eeeeeeeeeeeeeeef hún myndi klessa á jörðina og, og, og..

  2. Þá sagði Harpa:

    Skemmtileg samlíking Elías :-)

  3. Þá sagði Kalli:

    Haha, ég reikna með að þú sért að vísa til CANTAT-3? Ég er að verða brjálaður! :)

  4. Þá sagði Kalli:

    Btw. langaði til að deila með þér lausninni á dularfulla risa-.pdf CV skjalinu mínu. Ég breytti úr Georgia yfir í Palatino og skjalið stækkaði! Þá tók ég eftir að .doc skráin var huge líka.

    Grunur minn beindist að myndinni af mér og jújú, ég hef tekið hana í einhverri 400×400 upplausn, eða hvað það var, og síðan smækkað hana í Word. Word virðist svo bara geyma hana í upprunalegri stærð og sýna hana svo hún passi. Reikna ég með…

    Nú er .doc skjalið 36KB og .pdf 108KB. Alveg ásættanlegt :)

  5. Þá sagði Kalli:

    Svo ég haldi áfram að tala við sjálfan mig og stunda thread hijack þá minnkaði .pdf skjalið niður í 96KB við að skipta yfir í Georgia letrið. Skil það ekki en er sáttur þar sem það er mun flottara á blaði sem er með svona lítið af texta :)

  6. Þá sagði Elías:

    Mikið ertu með stórt CV. Egilssaga er öll bara 540 KB.

  7. Þá sagði Kalli:

    Karlssaga er líka miklu merkilegra rit ^.^

  8. Þá sagði Elías:

    Kannski ættirðu að prófa að skrifa CV-ið þitt í TeX, jafnvel LaTeX.

  9. Þá sagði Margrét:

    Má ég hafa samband við þig útaf orðalistanum. Ég hef verið að leita að orðalista til að búa til orðskiptinga-möguleika í umbrotsforritinu InDesign.

  10. Þá sagði Fríða:

    Ætlið þið í Tæknigarði að fara í hættusama ferð niður ána inn í Einmanafjöllin og upp að stjörnukíkinum stóra að tala við stjarnfræðingana?

    Það er úr þessari bók sem uppáhaldstilvitnunin mín er: Enginn skyldi verða of háður eignum sínum…
    … sagði Snúður og henti tjaldinu :)

  11. Þá sagði Elías:

    Við gerðum það reyndar í gær, við bara fórum upp tröppurnar upp á þriðju hæð þar sem stjörnufræðingarnir bentu okkur hvert við ættum að horfa.

    Ég hef hins vegar verið of upptekinn við að spila á munnhörpuna mína til að henda hlutum, sem ég þó ætti að gera.

  12. Þá sagði Elías:

    Já, og björgunin tókst.

  13. Þá sagði hildigunnur:

    þið Tæknigarðslið eruð hetjur :-D

  14. Þá sagði Erla:

    blogg karl! :)

  15. Þá sagði Elías:

    Já já, sýndu nú karli föður þínum þolinmæði, dóttir góð.

Leggðu orð í belg