Uppfærsla

í fyrradag var ég að endurheimta gögn af server sem hrundi um helgina en tókst ekki betur en svo að ég skrifaði kerfisgögn óvart á vinnustöðina mína. Svo vildi einmitt til að stýrikerfið á þessum tveimur vélum er áþekkt, en ekki hið sama, þannig að vissar skrár sem skrifuðust inn sem nýjar á vinnustöðina fóru að trufla fyrir þannig að í morgun sprakk hún á limminu og neitaði að ganga meir.

Ég hefði getað eytt hálftíma í að laga þetta en ákvað að nýta tækifærið í allsherjar uppfærslu stýrikerfis. Hún heppnaðist bara dável.

Ég biðst velvirðingar á að hafa sleppt öllum tæknilegum smáatriðum úr þessari frásögn, en það er vegna þess að slíkt myndi einungis rugla flesta lesendur þessa bloggs í ríminu.

Eitt svar við færslunni “Uppfærsla”

  1. Þá sagði Fríða:

    Sem betur fer er til fullt af síðum sem maður getur farið á ef maður vill lesa eitthvað nördalegt sem maður skilur ekki bofs í. :)

Leggðu orð í belg