Gegn heilræðum
Ég fór út áðan og hjólaði niður í Austurstræti og keypti mér bjór. Allur svitastorkinn og órakaður. Afgreiðslukonan í vínbúðinni spurði mig hvort ég ætlaði að kaupa tvo poka. Mér tókst að stynja einhverju gegnum bólgin raddböndin. Ég efast um að hún hafi skilið mig og hefur sennilega ekki haft áhuga á, enda leit ég út eins og hver annar róni. Á leiðinni heim mætti ég bloggynju nokkurri og ætlaði að segja “hæ” en ekkert kom út. Hún fitjaði upp á nefið og sneri sér upp í vindinn.
23. febrúar 2007 klukkan 20:52
Æ molinn. Farðu nú vel með þig og haltu þig fjarri bjórnum á meðan þú ert ða jafna þig.
24. febrúar 2007 klukkan 0:40
Æi takk.
28. febrúar 2007 klukkan 12:44
Hm, já. Ég sá þig, virtist vera á einhverri hraðferð greyið.
Hitt er svo annað mál að rónarnir eru oft og tíðum skemmtilegri heldur en veltilhafða pakkið.