Íslenzkar Gátur, Skemtanir, Vikivakar og Þulur
Hér á eftir fer blaðsíða 160 úr þessari merkisbók (ath að línuskiptingar fara ekki eftir frumútgáfu):
VIKIVAKAR OG ÞULUR.
SAFNAÐ HAFA J. ÁRNASON OG Ó. DAVÍÐSSON
GEFNAR ÚT AF
HINU ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAGI
KAUPMANNAHÖFN
Í PRENTSMIÐJU S.L. MÖLLERS
1887
160 LISTIR.
staðið á höfðinu á hnífilkappa, þó að siglt sé hægðarleiði. Séra Hallgrímur Pétursson nefnir líka list þessa.
Það er líka list, ef list skyldi kalla, að stökkva upp þrisvar sinnum og slá jafnframt báðum hælunum upp í rassinn á sér. Þetta á að gjöra hvað eptir annað.
Þá eru eptir listir þær, sem J. Ól. nefnir þrælaleiki, einu nafni, og er sannast að segja að þar fylgir renta nafni. Til þrælaleikja telur Jón ennfremur að sverja nálareið í keitu og er áður getið um það.
Að róa köttinn af gærunni er svo fáránleg list, að eg efa að hún hafi nokkurntíma verið leikin. En J. Ól. lýsir henni, og hann vissi hvert hann fór. Órökuð gæra er spýtt á sjávarströnd og þarf hún að vera rígföst. Ullin á að snúa upp. Köttur er settur á gæruna og er bundið um hann snæri, en hinn snærisendinn er festur í bát, sem flýtur fyrir landi, fast við ströndina. Nú sezt einn maður undir árar í bátnum og rær frá landi, en kötturinn krækir löppunum sem fastast í ullina og heldur sér þar dauðahaldi. Ef ræðarinn getur nú rifið köttinn upp úr ullinni, þá er hann talinn meðalmaður að burðum. Listin er ljót og aldrei tíðkuð um þessar mundir. Sjálfsagt stendur hún í sambandi við orðtækið: hann reri köttinn af gærunni (G.J.)
»Reðrastefna ad. v. conventus de membris pudendis virilibus: Vas habent quinque chaenicum capax (vulgo kútur sev áttúngur) cui unus fundus exemptus est, alter vero creta intus illinitus. Congregati nebulones, priapismo sibi inducto, membrum immittunt. Fundum si quis attigerit ut creta conspiciatur, princeps luti erit.«¹
Að draga hákarl eða að keipa. Þorskroði er hnuðlað saman í dálitla kúlu. Því næst er kúlan bundin neðan í spotta. Listarmaðurinn gleypir kúluna og dregur hana svo aptur upp kokið, á spottanum. Síðan gleypir hann hana aptur o. s. frv., eins og þegar sjómenn eru að keipa.
Heimildarmaður minn, J.Ól., bætir þessu við lýsinguna: »Ef kúlan er nokkuð stór, þá er ekki loku skotið fyrir það, að keiparinn kyrkist, og er þannig við búið, að slíkir gárúngar fái makleg málagjöld fyrir galgopaskap sinn.«
Að aka sméri. Listarmaðurinn klínir smérbita á ennið á sér og snoppúngar sig svo sjálfur, þángað til smérið bráðnar við hitann, og rennur ofan andlitið; á hann þá að sjá svo til, að það fari ekki fram hjá munninum.
Heimildarmanni mínum, J.Ól., þykir ekki list þessi göfugleg, enda væri synd að segja það. Hún er líka eflaust liðin undir lok.
Þrælaleiki, sem nú tíðkast, þekki ég ekki, nema ef vera skyldi að halda
¹ Frá þessari list er sagt með orðum heimildarmanns míns, J. Ól, Sbr. inng. bls. 6-7
24. febrúar 2007 klukkan 7:43
Þetta var áður en sjónvarpið var fundið upp.
Verst hvað ég er léleg í latínu, enda úr stærðfræðideild. Forvitni mín er vakin, spurning hvort þetta er of dónalegt til að biðja tengdó að þýða þetta fyrir mig.
24. febrúar 2007 klukkan 12:13
Ég skal koma með þýðingu þegar ég hef tíma.
24. febrúar 2007 klukkan 13:52
þetta er bara snilld. Ætli maður fari nú samt að taka þessa samkvæmisleiki upp í partíum?
24. febrúar 2007 klukkan 18:15
sé fyrir mér þennan með köttinn, ætli maður gæti notað fjórhjól í staðinn fyrir bát?
24. febrúar 2007 klukkan 21:15
Ef fjórhjólið er fótknúið eða handsnúið.
24. febrúar 2007 klukkan 21:19
Mikið vildi ég nú kunna latínu.
28. febrúar 2007 klukkan 12:45
Einskonar ráðstefna getnaðarlima: tekin er tunna sem rúmar fimm chaenix (sem á tungu hinna óþvegnu kallast kútur eða áttungur) og sleginn úr henni annar botninn, en hinn er makaður að innan með krít. Þegar lúsablesar þeir sem samankomnir eru hafa gert sér holdris, stinga þeir limnum inn. Sá er fyrstur snertir botninn þannig að krítin sjáist er sigurvegari leiksins.
28. febrúar 2007 klukkan 13:39
Ákaflega samkynhneigt. Þetta er svona pulsupartísfrottage.
28. febrúar 2007 klukkan 13:45
Já, fyrst þú minnist á það þá hafði ég aldrei hugsað út í að þeir geta stungið honum inn allir í senn.
28. febrúar 2007 klukkan 14:31
Ég sem var búin að fantasera um skylmingar…