Ræktin
Í morgun fannst mér ég vera svo þungur á mér að ég átti erfitt með að rísa úr rekkju. Ég er næstum hættur að fara í langar hjólreiðaferðir og geri lítið annað en að sitja heima og éta. Því er ég nú búinn að taka þá ákvörðun að ég ætla ekkert að borða það sem eftir er mánaðarins annað en það sem til er í ísskápnum og búrinu heima.
Ég fór svo út að hjóla og hjólaði í kringum Seltjarnarnesið og dáðist að sólarlaginu. Ég var orðinn nokkuð hress og heitur þegar ég kom heim og sá þá að það var eitthvað að gerast í Friðarhúsinu svo ég dreif mig þangað inn. Þar var verið að sýna mjög athyglisverða heimildamynd um sjálfstæðisbaráttu Bougainville.
7. mars 2007 klukkan 8:37
Það er ágætt að þú eigir vel stokkað búr og eins ísskáp, mánuðurinn er rétt byrjaður
7. mars 2007 klukkan 13:41
Já, alveg fullt af öllu.Ég held ég geti árieiðanlega lifað þarna í mánuð ef t.d. upp kæmi drepsótt.
7. mars 2007 klukkan 18:14
ég var einmitt að spá í að bjóða þér í mat á næstunni, og borvélinni með