Óvænt áreynsla
Ég sat inni á skrifstofu minni og átti mér einskis ills von þegar Valberg og Anil skunduðu inn glaðbeittir í fasi með bandýkylfur reiddar um öxl. „Ertu ekki að koma að spila?“ spurði Valberg vongóður. Allt í einu mundi ég að á öðrum bjór á föstudag hafði ég komið með digurbarkalegar yfirlýsingar að ég skyldi framvegis spila bandý með þeim á miðvikudögum. „Þú manst, þú lofaðir“ bætti hann við sigurviss. Það varð úr að ég keppti bara eins og ég var klæddur, enda var ég alveg óundirbúinn.
Þegar ég kom í Íþróttahús Háskólans mundi ég að ég hafði ekki komið inn í búningsklefa síðan ég tók upp á því að skrópa í leikfimi í 3. bekk í MR. Við vorum fljótir að fara inn í sal og skipta í lið. Fyrst spilaði Valberg einn gegn mér og Anil, síðan bættist Palli með í hópinn og fór í lið Valbergs, og svo að lokum Ragnar Stefán og Óli frá ISNIC, sem spilaði með okkur.
Ég svitnaði meira en ég hef svitnað síðan ég hjólaði síðast kringum Stór-Reykjavíkursvæðið, sem er orðið allt of langt síðan. Mér fannst mér ganga ömurlega og iðulega stóð ég sjálfan mig að því að gefa sendingar á fólk sem var ekki þar eða gefa sendingar á andstæðinginn. Alveg eins og í fótboltanum þegar maður var lítill. Mig minnir að ég hafi aldrei einu sinni reynt að spila fótbolta fyrr en ég var orðinn 9 ára og kominn með gleraugu og uppgötvað að til var skynheimur sjónar sem náði út fyrir 1 metra radíus, en mér hafði tekist að komast hjá greiningu á nærsýni í barnæsku þar til ég var búinn að vera í skóla í 3-4 bekki og vissi ekki einu sinni að maður ætti að geta lesið á töfluna, enda var slíkt hégómi hinn mesti því ég vissi alltaf um hvað kennarinn var að tala.
Að lokinni æfingu ákvað ég að best væri að fara heim og skipta um skyrtu. Ragnar Stefán sagði að ég hefði verið mjög góður miðað við að þetta væri mitt fyrsta skipti, en hann er alltaf að reyna að peppa alla upp. Ég tók mátulega mark á því.
Ég var svo heitur að ég gekk mestalla leiðina heim peysulaus á skyrtunni í fjúkinu.
14. mars 2007 klukkan 20:41
það lá að, að þú skulir spila einhverja óskiljanlega íþrótt.
bandý???
14. mars 2007 klukkan 21:12
Þetta er leikur sem virðist hafa verið leikinn á landnámsöld á Íslandi. Sjá http://en.wikipedia.org/wiki/Bandy
14. mars 2007 klukkan 21:14
Við lékum hann reyndar ekki á svelli, heldur á parketgólfi.
30. mars 2007 klukkan 15:06
Ég lenti einmitt í því sama í dag, bandýmennirnir hópuðust að mér og otuðu prikunum sínum í mig.
Ég lét eftir og fór með þeim í bandý.
Þetta er hörku íþrótt og gaman að spila hana, hef reynt að stefna að því að mæta oftar.
Jói Palli