Hjólið púnkteraði
Eins og Agureyrisfólkið segir, þá púnkteraði hjólið, og það á miðjum Laugavegi, rétt við Vatnsstíg, svo það var hægðarleikur að teyma það í Borgarhjól, og það í annað sinn.
Mér þótti þetta ekki einleikið.
Það var hins vegar enginn við og miði á hurðinni að hann kæmi kl 1.
Ég skildi þá hjólið eftir og ætlaði að hringja síðar, en svo gleymdi ég því í æsingnum um að komast á Lotus Notes ráðstefnu í Smáralind.
Er ég var á leið minni að labba í vinnuna hitti ég þá öðlingskonu Guðrúnu Pétursdóttur á ljósunum í Lækjargötu. Hún bauð mér far, höfðinginn sem hún er.
Uppúr hádegi fór ég á Lotus Notes ráðstefnu. Þótt Notes hafi ekki alltaf verið vinsælt meðal okkar Reiknistofnunarnörda, verður þó að segjast að það hafi ávallt verið í sókn, og er það meira en hægt er að segja um suma samkeppnisaðila.
22. mars 2007 klukkan 20:24
Ekki bara Akureyringar punktera. Það gera Þingeyingar líka. Með háum hvelli.
Það er annars fátt verra en punkterað reiðhjól.
22. mars 2007 klukkan 21:41
Gaurinn í Borgarhjóli (um?) er svolítið slæmur með að skreppa frá, ég hef nokkrum sinnum komið að læstum dyrum þar. Sem betur fer er ekki langt heim…
22. mars 2007 klukkan 23:39
Kevlar dekk eru alveg málið, það hefur ekki púnkterað hjá mér síðan ég fékk mér þesslags, kostuðu að vísu nokkuð meira en hefðbundin gúmmídekk, en vel þess virði…
22. mars 2007 klukkan 23:58
Eru þau ekki slæm í hálku?
23. mars 2007 klukkan 3:14
hér á bæ er verið að skipta Lotus (lesist Ljótus) út fyrir Exchange.
Lotus gerir sitt og hefur jú farið batnandi, en djö hvað það er samt leiðinlegt kerfi og þá sérstaklega adminhlutinn
23. mars 2007 klukkan 8:37
Exchange … hmm … er það til fyrir Linux?
23. mars 2007 klukkan 8:53
Og hvaða útgáfu af Lotus eruð þið með?
23. mars 2007 klukkan 9:40
Sennilega heldur hálli í sleipu, en annars eru hjólastøigarnir ruddir jafnóðum svo það reynir ekki mikið á það… Svo er Þetta einhver gúmmí/kevlar blanda sem á að vera “best of both worlds”.
Skil annars ekki hvað fólk er alltaf að dissa Lotus Notes. Þó ekki væri annað er þetta fín vírusvörn, og bara að það skuli vera til einhver nothæfur valkostur við Micro$oft finnst mér mikils virði. Ég er reyndar í nokkuð þróuðu Notes umhverfi í vinnunni, en það kemur mér stöðugt á óvart hvað hægt er að gera margt í Notes annað en að sækja og senda póst.
23. mars 2007 klukkan 10:23
Síðan útgáfa 7 kom hefur þetta bara verið að batna. Annars notum við þetta bara fyrir stjórnsýsluna.
23. mars 2007 klukkan 12:44
nýjasta af server og svo 7 fyrir clients
23. mars 2007 klukkan 16:07
hjólastígar já, ruddir jafnóðum, jaaaaaá! I wish.
Þekki eina sem talaði alltaf um Lotus Bloody Notes. En það er reyndar svolítið langt síðan.
23. mars 2007 klukkan 16:46
Reyndar er þetta bara meðvirkni í mér. Ég nota það ekki beinlínis sjálfur og er farinn að verja þá sem eru háðir því fyrir fórnarlömbum þess.
24. mars 2007 klukkan 12:18
Ég hef lítið nota Notes en það getur gert fullt af hlutum sem Exchange getur ekki gert eins og allskonar einföld skipulagskerfi, þjónustugrunnar o.fl.
Tölvupóst-hlutinn í Lotus Notes hefur þó alltaf farið í taugarnar á mér. Kannski hefur þetta skánað síðan 2000, hver veit
24. mars 2007 klukkan 12:26
Þetta sökkar náttúrlega hræðilega sem tölvupóstkerfi. Exchange er náttúrlega hundrað sinnum verra.
25. mars 2007 klukkan 8:24
Kevlar er málið. Þola samt illa salt.
30. mars 2007 klukkan 11:07
Mér finnst nú alveg óþarfi að setja spurningarmerki á eftir tengdasyni þínum í tenglalistanum… þótt við lifum í synd og höfum ekki fjölgað kyni þínu eigum við kött saman, og ryksugu!
30. mars 2007 klukkan 11:12
Þetta er eitthvað gamalt, frá því leyti sem þið voruð alveg nýbyrjuð.