Gleðilega hátíð

Ég eyddi deginum í að ala dóttur mína upp í pólitískri baráttu. Hún lenti næstum í viðtali á Stöð 2. Hins vegar var klukkustundarlangt viðtal við afa minn í Ríkisútvarpinu.

Í tilefni dagsins hef ég Internationalinn fluttann í kvikmynd Bertoluccis Il Conformista. Af einhverjum ástæðum gat ég ekki samstillt hljóð og mynd.

18 svör við færslunni “Gleðilega hátíð”

  1. Þá sagði Erla:

    gleðilegt gærdagsins afmæli, aftur! ertu orðinn of gamall til að blogga?

  2. Þá sagði baun:

    áttirðu afmæli??? til hamingju!

  3. Þá sagði Elías:

    Já, maður á alltaf einhvern tímann afmæli.

  4. Þá sagði baun:

    nokkuð til í því.

  5. Þá sagði Elías:

    Annars tók ég eftir því að blöðin voru ekki að hafa fyrir því að tilkynna það. Hvers vegna ætli það hafi verið?

  6. Þá sagði HT:

    Ankannalegt fréttamat, svo ekki sé meira sagt.
    Kannski Styrmir og Þorsteinn hafi sammælst um að halda fréttinni frá þjóðinni.
    Annað eins hefur nú gerst…

  7. Þá sagði baun:

    Gleðilega hátíð

  8. Þá sagði Elías:

    Já, í dag er afmæli Bobs Dylan. Er það ekki fánadagur samkvæmt stjórnarskrá Lýðveldisins?

  9. Þá sagði Sigvaldi Eggertsson:

    Ef ekki fánadagur, þá í það minnsta lögbundinn frídagur!

  10. Þá sagði Kristin:

    Á ekkert að fara að blogga hér? Maí er alveg að verða búinn.

  11. Þá sagði baun:

    þetta er ljómandi góð færsla…

  12. Þá sagði hildigunnur:

    hún dettur nú ekkert út þó það komi ný í viðbót…

  13. Þá sagði HT:

    Jæja, 40 dagar liðnir.
    Ef ég hefði ekki séð þig kommenta annars staðar, gæti ég haldið að þú værir dauður, eða á fjalli í eyðimörkinni eða eitthvað.
    Það er þér og þínu bloggi að kenna, að ég fór að lesa blogg út um hvippinn og hvappinn, og jafnvel kommenta stöku sinnum. Ég verð þess vegna hundfúll ef þú ert bara hættur.

    P.s.
    Og ef þú ert hættur finnst mér lágmarkskrafan vera “to go out with a bang, not a whimper”.

  14. Þá sagði baun:

    ýmislegt hefur þú nú á samviskunni Elías…

  15. Þá sagði HT:

    Ef ég legði saman tímann sem hefur farið í blogglestur, leiðindin sem ég hef valdið fólki með heimskulegum kommentum og aulafyndni. Pirringinn sem það hefur valdið mér að lesa heimskuleg komment og aulafyndni annarra, ja, þá er það þó nokkuð sem Elias ber ábyrgð á…

  16. Þá sagði Hrólfur S.:

    Ég fíla Dagnýju. Mér finnst samt þú ættir að hafa læv hljóðfæri. Þá glataði lagið sakleysinu.

  17. Þá sagði Elías:

    Eins og í http://helgafell.rhi.hi.is/flaut.mp3 ?

  18. Þá sagði HT:

    Það lifir!!!

Leggðu orð í belg