Ég er enn á lífi

Fólk er stanslaust að spyrja mig hvers vegna ég sé hættur að blogga. Ég hef enga góða ástæðu, enda lít ég ekki svo á að ég sé hættur, þótt ég hafi ekki bloggað í einn og hálfan mánuð. Ég hef jafnvel skrifað margar færslur í kollinum sem ég gleymt jafnharðan.

Ég er í sumarfríi og valkyrjan dóttir mín býr hjá mér þessa dagana. Við hjólum um, verslum í Tiger og förum á kaffihús, spilum tennis á tennisvellinum í Fossvogi og badminton í garðinum og ræktum okkar skólagarð. Núna erum við að fara í heimsókn til kærustunnar og dóttur hennar að horfa á pizzu og borða vídeó.

Lífið er gott. Sjálfum finnast mér athyglisverðustu færslurnar vera þegar maður er að kvarta yfir einhverju, en maður getur ekki alltaf leyft sér þann lúxus að vera geðvondur, sérstaklega ekki þegar maður er upptekinn alla daga við að njóta sumarfrísins.

8 svör við færslunni “Ég er enn á lífi”

  1. Þá sagði HT:

    Gott að allt er gott! Hafðu það bara svoleiðis áfram.

  2. Þá sagði hildigunnur:

    :-)

  3. Þá sagði eddi:

    ég tel þetta nú bara með betri færslum frá þér.

  4. Þá sagði baun:

    mér finnst fínt að lesa eitthvað sem ekki er kvart og kvein. vona að vídeóið hafi bragðast vel.

  5. Þá sagði soley:

    engar myndir?
    :o

  6. Þá sagði Mímí:

    Sæll

    Rakst á orðalistann þinn á netinu. Vá. ótrúlegur! ætlaði að copiera hann yfir í excel en náði bara í mitt “g-ið” í fyrsta dálkinn. Ákvað því að spyrja þig hvort þú ættir þennan lista eitthvað flokkaðan?

    Málið er að mig vantar 4-6 stafa íslensk orð til að nota vinnu minnar vegna. Vantar samt orð án íslenskra sérstafa. bara orð eins og bolti, borð, osfrv.

    Ekki býrðu svo vel?

  7. Þá sagði Elías:

    Orðalistinn er verk margra manna og á ég minnstan þátt í honum. Jörgen Pind á aðalheiðurinn af honum, þarnæst Orðabók Háskólans. Ég notaði hann í tvö forrit sem ég skrifaði, rímorðaleitarvélina og íslensku orðabókina fyrir aspell.

    Ég get búið til svona lista fyrir þig. Er borð ekki annars með íslenskum sérstaf?

  8. Þá sagði lindablinda:

    Ertu strax kominn með kærustu? Alveg er þetta merkilegur andskoti með karlmenn. Af hverju leitum við konurnar árum saman en þið eruð komnir með kjeddlingar áður er hægt er að segja “á morgun”?? Ég skil þetta ekki.

Leggðu orð í belg