Ég á aðdáendur!

Svo virðist sem einhverjir óvitrir einstaklingar hafi sammælst um að sálga mér í fjarveru minni.

Slíkt er engin nýjung fyrir mér. Á aldrinum 10 til 14 var ég umsetinn af fíflum sem vildu lemja mig í spað.

Þeim varð aldrei úr ætlunarverki sínu. Hins vegar breytti ég engu í minni daglegu rútínu.

4 svör við færslunni “Ég á aðdáendur!”

  1. Þá sagði eddi:

    bjallaðu bara og ég er mættur gamli vin, ætti að geta haldið þeim frá þér ;)

  2. Þá sagði hildigunnur:

    spurning um að birta skjáskotið?

  3. Þá sagði baun:

    nei, sko. bara líf í anarkistanum. gaman.

    og bobmoran klipping hljómar assgoti vel.

  4. Þá sagði Elías:

    Mikið er gott að eiga vini sem eru prófessjónal lífverðir! :-)

Leggðu orð í belg