Ný klipping
Ég er kominn með nýja klippingu. Áður en ég fór út ætlaði ég að fara í klippingu hjá Svandísi á Hótel Sögu, sem er alltaf eins og hugur manns og gerir nákvæmlega það sem manni dreymir um, en hún var í fríi, þannig að ég fór á Klapparstíginn og fékk einhverja konu sem ég leyfði að gera hvað sem var við mig svo hún afgreiddi mig á fimm mínútum og rukkaði svo 3500 kall fyrir eða þar í kring.
Áður var ég með klippingu eins og hetjurnar úr æsku minni, þeir Beatles og Rolling Stones. Núna er ég með sömu klippingu og aðrar hetjur úr æsku minni, þeir Bob Moran og Sid Vicious.
7. júlí 2007 klukkan 8:58
Eh… þú getur ekki komið svona með tengil alveg án myndar. En ekki hljómar það vel: “afgreiddi mig á fimm mínútum…”
7. júlí 2007 klukkan 10:43
Þetta er hin svokallaða “jarhead” klipping. Annars var Sid ekki beinlínis með jarhead, hann var með úrsérvaxna jarhead klippingu.
11. júlí 2007 klukkan 22:52
Flott klipping, sá til þín í gær