Skógurinn eðlar sig

Þetta er eitt versta ofnæmissumar sem ég man eftir síðan ég var 12 ára og hélt að ég væri með kvef. Ég hef notað Histasín (cetirizine) en það virðist ekki virka lengur á mig. Kannski ég ætti að gefa Kestine aftur séns. Lóritidín virkar ekki neitt á mig. Verst þótti mér að Terfenadine (Teldanex, Seldane, Triludin) var tekið af markaðnum vegna þess að það getur steindrepið mann. Eftir á að hyggja fannst mér alltaf eins og hjartað tæki aukakippi um það leyti þegar ég bruddi það sumarlangt fyrir 15-18 árum síðan.
Ég man enn þann dag þegar ég prófaði það fyrst. Það var árið 1990 og við vorum að keyra frá London til Napólí og fórum sem leið lá í gegnum Sviss. Í um það bil 2000 metra hæð fékk ég óstjórnlegt hnerrakast sem lýsti sér í því að ég hnerraði á uþb 10 sekúndna fresti og hver hnerri hafði langan aðdraganda ásamt því að vera eins og sprenging. Það var keyrt í snarhasti í næsta bæ og að næsta apóteki. Mér tókst ekki að koma upp einu einasta orði, en það reyndist ekki nauðsynlegt. Afgreiðslufólkið rétti mér pakka með einhverju sem reyndist vera Seldane. Ég fékk mér eina töflu og nokkrum mínútum síðar var eins og ekkert hefði í skorist.

11 svör við færslunni “Skógurinn eðlar sig”

  1. Þá sagði Fríða:

    thíhí, það mætti halda að þú værir skyldur mér. Flestallt karlfólkið í minni fjölskyldu er svona.

  2. Þá sagði pallih:

    Hefurðu reynt Telfast?

  3. Þá sagði Elías:

    Nei, það hljómar vel! Takk fyrir þessa ábendingu! Ég sé að nú er ég kominn með ástæðu til að heimsækja lækninn minn.

  4. Þá sagði Tóta p.:

    Telfast rokkar.
    Ég hélt að sonur minn væri haldinn einhverri sérlega harðsvíraðri gerð af ofnæmi vegna þess að lyfin hafa dugað ansi skammt hin síðari ár. Í sumar hefur hann gleypt Telfast og notað nefspreyið Nasonex og hann hefur ekki fundið fyrir neinu!
    Kraftaverkalyf, segi ég og skrifa.

  5. Þá sagði Elías:

    Telfast er sama og efnið sem Terfenadine breytist í í meltingarveginum.

  6. Þá sagði eddi:

    ég er einmitt búinn að vera helstíflaður, meira en vanalega..
    og þessi ofnæmislyf virkuðu takmarkað.. endaði á pensilíni

  7. Þá sagði Orri:

    Ég er líka á telfasti, tek samt histasín líka…
    þoli samt ekki að vera háður einhverjum svona lifjum…

  8. Þá sagði Gunnar:

    Polaramin er málið.

  9. Þá sagði Elías:

    Polaramin oj bjakk. Er það enn á lyfjaskrá?

  10. Þá sagði Hallgrímur:

    Aerius þykir líka gott, aukaverkanir sjaldgæfar. Var uppfærður í það úr histasíni um árið. Nýlegt lyf og sennilega frekar dýrt.

  11. Þá sagði Elías:

    Frábærar athugasemdir hér, takk, takk, takk.

Leggðu orð í belg