Keypti nýjustu Harry Potter notaða á afslætti klukkan hálf tólf
Ég var hálfnaður á leið minni niður Laugaveginn þegar ég keypti Harry Potter and the Deathly Hallows á 1500 krónur. Síðan kom ég við á Ölstofunni og varpaði kveðju á nokkra gamla kunningja, aðallega mína fyrrverandi mágkonu Þórunni Valdimars og aðrar gamlar vinkonur sem sátu og stóðu í kringum hana. Ég þurfti að þykjast sem regnhlífin mín væri galdrasproti til að geta komist heilu og höldnu burt með bókina.
Þegar ég kom heim horfði Máni ásakandi á mig. Ég bjó því til þennan lolcat:

21. júlí 2007 klukkan 9:23
jæja, ég verð bráðum að fara að búa til loldogs, þetta gengur ekki