Archive for júlí, 2007

Kominn aftur

laugardaginn, júlí 7th, 2007

Ég hef orðið var við að fólk virðist hafa haldið að ég hafi flutt mig yfir á Moggabloggið. Ekkert er fjarri sanni. Ég hef að vísu notað það til að kommenta á önnur moggablogg og á fréttir mbl.is. Nú virðist hins vegar sem flygill hafi fallið á Moggabloggið og flest fólk með viti hafi yfirgefið það í snarhasti út af einhverju. Því eru enn minni líkur á því að ég auki mína notkun á því.

Ég var á Spáni í tvær vikur. Það var frábært, sérstaklega fyrir dótturina sem var með mér.

Ég keypti mér gítar á Spáni. Hann kostaði bara 80 evrur og var langtífrá ódýrasti gítarinn. Ég hef aldrei átt spænskan gítar áður, og er mjög ánægur með kaupin. Hér eru myndir:
sp-gitar-1.jpgsp-gitar-2.jpg