Miðbæjarrottan
Á heimleiðinni uppgötvaði ég að Ranimosk var að koma aftur úr barnsburðarleyfi.
Ég leit við og keypti bol sem á stendur
ROTTA
og mynd af stórri rottu, og svo mjög sniðuga gjöf handa kærustunni. Það var þó ekki Jesus Action Figure, né heldur Jesúdúkkulísa með bondage búningi, en slíkt má fá í þessari mjög svo skemmtilegu búð sem er staðsett mitt á milli Dressmann og Olívers.
Let’s Pop!
2. ágúst 2007 klukkan 0:33
Og þá er maður búinn að missa áhugann á því að fá að vita eitthvað meira um hvað þið eruð að gera. Af einskærri hræðslu við að komast þá að einhverju sem mann langaði aldrei til að vita nokkurn skapaðan hlut um.
2. ágúst 2007 klukkan 8:55
¿Que?
2. ágúst 2007 klukkan 9:48
Fríða mín, það fást ekki tómar perravörur í Ranimosk
2. ágúst 2007 klukkan 9:50
Til að eyða öllum misskilningi þá er Ranimosk búð með svona “pop culture items” og er mjög undir áhrifum pop art. Til dæmis má fá þarna stílabækur með kápum mjög sjaldgæfra íslenskra bóka og svo margt furðulegt innflutt. Tónlistin í hátölurunum er muzak-útgáfur af Burt Bacharach og þessháttar.
Bolirnir eru líka skemmtilegir.
2. ágúst 2007 klukkan 12:25
oh… aldrei má maður halda í friði að einhver perraskapur sé á ferð einhversstaðar. Á hverju á maður þá eiginlega að hneykslast? Ég bara spyr
3. ágúst 2007 klukkan 10:41
Hmmm, þessi Ranimosk linkur er nú dauðari en diskóið frá mér séð…
3. ágúst 2007 klukkan 10:51
Já, svona er með professional vefsmiði, þeir koma sér aldrei að verki ef það er fyrir þá sjálfa.
3. ágúst 2007 klukkan 12:07
Fyrirgefið að Ranimosk vefsíðan skuli ekki vera komin upp (skiltið er ekki heldur komið á búðina
en úr þessu verður leist um helgina (vonadi skiltið líka 
3. ágúst 2007 klukkan 12:11
Annars má sjá kort af svæðinu hér
6. ágúst 2007 klukkan 22:06
Innantóm loforð…
Eins og ég var spenntur að sjá…