Krúna lýðveldisins

Ég hef heyrt þeirri skoðun haldið fram að ástæðu pólitísks doða Íslendinga sé að leita í þeirri staðreynd að hér varð aldrei neinn “dagur frelsisins” þegar æstur múgurinn reif niður táknmyndir kúgarans, eins og þegar múgurinn í Baghdad kollvarpaði styttunni af Saddam. Þann 17. júní 1944 hefðu Íslendingar gert betur að rífa niður þetta innsigli og þessa kórónu.
Því því er svo farið með Íslendinga að þeir lærðu of vel að kyssa vöndinn. Þegar frelsisvindar fóru svo loks að blása var þessi þrautpínda þjóð svo aðframkomin af Móðuharðindum að hún tók varla eftir því; það þurfti danskan ævintýramann með lýðveldishugsjónir innblásnar frá Bandaríkjunum og Frakklandi til að sýna okkur fram á að Íslendingar hefðu engan áhuga á að berjast fyrir lýðveldið.
Næst þegar byltingarvindar Evrópu blésu upp í storm var hin reykvíska birtingarmynd þess þegar öskrandi hópar af fullum menntaskólanemum gengu um bæinn hrópandi ókvæðisorðum að rektor sem vildi að þeir hættu að drekka, en sonur hans var með þeim í bekk og endaði annars skemmtilega ævi sem einn fyrsti róninn í miðbænum.
Að lokum gaf konungur þeim stjórnarskrá og byggðu þeir þinghús með kórónu konungs trónandi á þakinu í kjölfarið. Einveldið hafði alveg nýlega verið afnumið, en það var eins og enginn hafi nokkru sinni fundið muninn. Að lokum þegar eyjaskeggjar slíta á samband við danska konungsveldið er staðgengli þess á Íslandi fengið nýskapað “forsetaembætti.” Breytingin er aðallega í orði. Hugmyndin um konungsvald af Guðs náð er ekki dauð, bara sofandi.
Þegar fulltrúar framkvæmdavaldsins gengu inn í líkama manneskju nokkurrar sem nýlega var ákærð fyrir ölvunarakstur í þeim tilgangi að ná úr henni þvagsýni til að nota sem sönnun í sakamáli, þá voru þeir ekki eins og þjónar almennings í frjálsu lýðveldi; þeir gengu þar fram sem majestatsins bífalingsmenn með óskorað vald til að typta almenning og útdeila jafnt réttlæti sem ranglæti.
Er ekki kominn tími til að leiðrétta þessi sögulegu mistök og leggja þessa kórónu fyrir róða og hugsa eins og frjálsir einstaklingar?
20. september 2007 klukkan 8:31
Er þetta verðugt verkefni fyrir brjálaða anarkista þessa lands
20. september 2007 klukkan 9:37
Við gætum kannski sett þarna mynd af þvagleggnum, okkar nýja þjóðartákni, í staðinn fyrir upphafsstafi Kristjáns IX.
20. september 2007 klukkan 21:35
Mætti flétta honum inn í lögreglustjörnu.
22. september 2007 klukkan 0:45
Núna er manni liggur við réttur bjór um leið og maður skráir sig í skóla (framhalds- eða háskóla allavega). Eru það framför?
Þú ættir að pósta lolcat-inn þinn á þessa síðu http://lolsecretz.blogspot.com/