Óforsjálni

Þegar ég gekk heim áðan furðaði ég mig á öllu þessu blauta og hrakta fólki sem ég mætti sem var ekki með regnhlíf. Hvað er eiginlega málið með það? Mér sýndist þetta ekki vera neitt útigangsfólk og flestir hefðu áreiðanlega efni á einni slíkri.

13 svör við færslunni “Óforsjálni”

  1. Þá sagði hildigunnur:

    ja, það var allavega ekki gott að vera utandyra regnhlífarlaus í dag. Forláta regnhlíf elstu dótturinnar bjargaði mér, en líklega hefur það verið fyndin sjón (regnhlífin er með grísatrýni og skott) :D

  2. Þá sagði Kristin:

    Ég get ekki notað regnhlíf. Bara get það ómögulega, er svo smávaxin að ég er allt of hrædd um að stinga augun úr öðrum vegfarendum. Þetta fer í taugarnar á Frökkum sem eru sammála þér um að ekki sé sjón að sjá mig blauta og hrakta.

  3. Þá sagði Flórgerður Flórdísardóttir:

    …já rigningin kemur okkur alltaf á óvart, veit ekki hvað ég hef keypt margar í neyð um veröldina víða….en þarf ekki að hanna regnhlífar með meiri styrkleika til að þola allan vindganginn hér uppi? Annars er nú fátt rómantískara en að spássera undir regnhlíf á svona haustkvöldum. Nóg um það.

  4. Þá sagði Elías:

    Það er sitthvað, £5 regnhlíf keypt í túristagildru á Oxford Street eða £20 regnhlíf keypt hjá James Smith & Sons á New Oxford Street.
    Einnig er farið að framleiða sérstaklega hertar regnhlífar úr trefjagleri eða koltrefjum. Flestar alvöru regnhlífar í dag eru þannig, t.d. Totes golfregnhlífar eða Fulton Stormshield.

  5. Þá sagði Elías:

    Þess fyrir utan hefur hnattræn hlýnun haft þau áhrif að undanfarin 10 ár hefur slagviðri verið alger undantekning. Í 19 skipti af hverjum 20 sem það hefur rignt undanfarin 10 ár hefur vindur varla bærst, og ef hann gerir það, þá þolir regnhlífin mín það alveg.

  6. Þá sagði hildigunnur:

    mig langar í regnhlíf með svona góðu lagi, eins og dótturinnar, ss. djúpa skál, ekki flata. Fær maður þær hér heima?

  7. Þá sagði Elías:

    Ég hef einu sinni séð alvöru regnhlíf hér heima. Þá var það regnhlíf sem kostaði 20 dollara í USA og 20 pund í UK og 10 þúsund krónur hér heima …

  8. Þá sagði Flórgerður Flórdísardóttir:

    Ja, maður kemur ekki að tómum kofanum hjá þér frekar en fyrri daginn. Þetta eru athyglisverðar upplýsingar! Ég hélt að hnattræn hlýnun gæfi einmitt aukinn kraft í vindakerfið, finnst ég hafa séð það í einhverri heimsendaspánni. Tja, en allavega við höldum þá áfram að spóka okkur eins og enskir lordar og öll sú stétt í andvaranum hér heima. Adios.

  9. Þá sagði hildigunnur:

    segja enskir lordar Adios?

  10. Þá sagði Bella-Donna norðursins:

    já já það er samkvæmt áreiðanlegum heimildum, sumirhverjir hafa tekið kúrsinn spænska101. Au revoir.

  11. Þá sagði hildigunnur:

    og frönsku líka? Ciao hérna megin.

  12. Þá sagði Elías:

    Kristín: ég þurfti að samþykkja athugasemdina þína, sennilega vegna þess að ég hafði sett orðið “free” á bannlista einhvern daginn. Ég er búinn að breyta því núna.

  13. Þá sagði Free Willie:

    I love to be free

Leggðu orð í belg