Gaëtan Henri Alfred Edouard Léon Marie Gatian de Clérambault

Samkvæmt leyndum skilaboðum sem er að finna í skáldsögunni The Catcher in the Rye mun hver sá sem getur vegið mig með einu byssuskoti í beinni útsendingu vinna hjarta leikkonunnar Jodie Foster. Hins vegar er ekki líklegt að hjarta mitt verði unnið með nokkrum nafnlausum athugasemdum á blogginu mínu, enda er hjarta mitt hart og kalt, og það sem meira er: ég á alveg frábæra kærustu þegar!

7 svör við færslunni “Gaëtan Henri Alfred Edouard Léon Marie Gatian de Clérambault”

  1. Þá sagði Flórgerður Flórdísardóttir:

    Reyndar eru hinir nafnlausu líka í góðum málum hvað það varðar, en gaman er að fá að skjóta orði í belginn góða á meðan sá gállinn endist :)

  2. Þá sagði Hið nafnlausu hörfar:

    Já auðvitað á ekki að hrekkja fólk í netheimum, maður á að kunna sér hóf þar sem annars staðar og sem sannur friðarsinni og mannvinur læt ég af þessari iðju. Mitt hjarta er hvorki kalt né falt, en auðvitað má túlka hin naflausu orð sem cyber-flirt….og skal hér látið staðar numið og tekið til við þarfari athafnir eins og að setja haustlauka í jörð og bíða svo eftir litríku og blómlegu vori. Í nafni byltingarinnar :)

  3. Þá sagði Elías:

    Alltaf þegar ég sé þessi orð “Í nafni byltingarinnar” þá verður mér hugsað til David Hemmings í hlutverki Dildanos í baráttunni gegn hinum illa Duran-Duran.

  4. Þá sagði Kalli:

    Heyrðu, þú ert bara að toppa Big D.O. á frambjodandi.is.

    Hins vegar áttu ekkert í Gunnar Krossmann svo líklega fer þjóðin til helvítis ef það er til.

  5. Þá sagði Elías:

    Síðast þegar ég gáði var ég næst-efstur af þeim sem eru kjörgengir, með einungis Jón Gnarr ofar.

  6. Þá sagði Frú Sullenberger eða hvað annars sú ágæta kona heitur....:

    Fyrirgefðu, hin nafnlausa aftur hér: Ég má til með að bæta því við að ég kom út sem Catcher in the Rye í bókaquizinu hjá kærustunni…..:)

  7. Þá sagði Catcherinn:

    Svona lítur það út:

    You’re The Catcher in the Rye!
    by J.D. Salinger
    You are surrounded by phonies, and boy are you sick of them! In an ongoing struggle to search for a land without phonies, you end up running away from everything, from school to consequences. In this process, you reveal that many people in your life have suffered torments and all you really want to do is catch them as they fall. Perhaps using a baseball mitt. Your biggest fans are infamous psychotics.

Leggðu orð í belg