Hættan við að hætta
Þrátt fyrir að ég ætti ekki að sitja við tölvuna um þessar mundir sökum bakverks, knýr skyldan mig til að rita þessa færslu, öðrum til aðvörunar.
Tvö nýleg dæmi hafa sannfært mig um að það að hætta að blogga getur reynst þrungið hættum, sérstaklega ef maður bloggar á blogspot.com.
Dagbækur Hemúlsins og Fréttir frá mínu landi (áður Blogg dauðans) hafa nýlega lagt upp laupana. Bæði þessi blogg voru frekar vinsæl og hið síðara með vinsælustu bloggum á landinu og þar af leiðandi með krækjur og hlekki víða á síðum annarra. Þetta er því kjörlendi spammara til að menga Netheima með auglýsingum sínum um stinningarlyf, klám og annan ófögnuð.
Ástæðan fyrir því að þeir auglýsa á þessum síðum er til að ná hærri stöðu á Google, fyrir hvað sem er.
Mistökin sem fyrrnefndir bloggarar gerðu var að loka blogginu og henda því þannig að hver sem er gat endurstofnað það. Þess í stað hefðu þeir átt að læsa því á einhvern hátt eða stofna það aftur á nýjan leik án þess að setja í það neinar færslur.
Ég hvet því alla sem þetta lesa til að fjarlægja vísanir í umrædd blogg af sínum síðum og vonast til að fólk vari sig á þessu í framtíðinni.
15. október 2007 klukkan 12:32
já, þetta var ljótt.
15. október 2007 klukkan 13:14
Var Ármann búinn að loka sínu alveg? Ég fór reglulega inn á síðuna hans og þá var allt í lagi með hana.
15. október 2007 klukkan 15:44
Takk fyrir þessa ábendingu, ég fjarlægði vísunina af mínu bloggi í kjölfar hennar.
31. október 2007 klukkan 13:30
Point taken. Góð ábending.
Finnst samt herpesinn á einhvern algerlega óviðeigandi hátt í anda hins gagnorða og stundum dálítið kaldranalega bloggs sem áður var á þessu urli.