Archive for október, 2007

Áhugaleysi

þriðjudaginn, október 2nd, 2007

Ég er nú orðinn tæplega hálffimmtugur, gráskeggjaður en ekki að sama skapi virðulegur eða rólegur.
Á öllum þessum tíma hef ég orðið var við mikinn áhuga fólks almennt og sérstaklega kynbræðra minna á tveimur hlutum sem ég hef aldrei getað einu sinni þóst hafa áhuga á: bílum og íþróttum.
Mér þætti gaman að vita af hverju þetta er.
Reyndar er ég ekki áhugalaus um íþróttir með öllu; mér finnst t.d. gaman að spila tennis og badminton og svo finnst mér líka gaman að hjóla. Ég hafði líka mikið gaman af skotfimi í æsku og síðar bogfimi. Hins vegar tárfelli ég af leiðindum ef ég verð vitni að fótbolta.

Veiðidýr

þriðjudaginn, október 2nd, 2007

Þegar ég kom heim var Máni á gangstéttinni fyrir utan að reyna að murka lífið úr þessu dýri. Mér sýnist það vera rotta. Hann hefur sennilega aldrei lært af móður sinni að veita því náðarhöggið. Ég tók mynd og lét hann svo eiga sig með því.
rottan.jpg