Archive for nóvember, 2007

Jónas

miðvikudaginn, nóvember 14th, 2007

Jónas er talinn af mörgum vera íslenskasta skáldið, en í raun er staðreyndin hið gagnstæða. Af kvæðunum eftir hann sem voru í bókinni sem ég lærði í skóla var eitt elegískt distikon (hexameter og pentameter til skiptis, Ísland farsælda Frón), annað ítölsk sonnetta (Ég bið að heilsa), þriðja blanda af terza rima og ottava rima (Gunnarshólmi).
Flest framsæknustu kvæði hans voru í hæsta máta óþjóðleg. Hann var óþjóðlegasti Íslendingur síns samtíma. Hann varð sérstaklega frægur fyrir að ráðast harkalega að þjóðlegri menningu eins og hún kom fram hjá t.d. Sigurði Breiðfjörð.