Archive for desember, 2007

Gleðileg jól

mánudaginn, desember 24th, 2007

Hér er jólagjöf mín til netheima; möndlubúðingsuppskrift ömmu minnar, frú Evu Pálmadóttur:

150 g möndlur
75 g búðingshrísgrjón
tilda-italian.jpg
87,56 g sykur
1 l mjólk
1 l rjómi
10 blöð matarlím
vanilla

fyrir sósu:
1 l rjóma
500 g sykur
vatn

Hellið sjóðandi vatni á möndlurnar til að það verði auðveldara að flysja þær.

Sjóðið hrísgrjónin mjög varlega í lítilli mjólk og hellið mjólk út í eftir því sem þykkist.

Flysjið möndlurnar og malið þær mjög smátt, helst í snúningskvörn eins og parmesankvörn. Skiljið eina eftir ómalaða.

Þegar hrísgrjónin eru orðin alveg mjúk, setjið þá möndlurnar út í og hitið upp með aðeins meiri mjólk.

Bætið sykri og vanillu út í eftir smekk.

Bræðið matarlímið í smá vatni.

Þeytið rjómann.

Látið allt kólna aðeins.

Blandið saman matarlíminu og grautnum og gætið þess að þetta sé orðið tiltölulega kalt svo grauturinn bræði ekki rjómann.

Hrærið rjómann varlega með spaða inn í grautinn.

Setjið eina ómalaða möndlu í.

Setjið í form og látið standa í ísskáp.

Uppskriftin er ekki mjög nákvæm, en það á að fara uþb jafn mikið í rúmmáli af þeyttum rjóma og graut. Það mun alltaf eitthvað verða eftir. Hægt er að leysa búðinginn úr forminu með því að hita formið og á búðingurinn að geta staðið.

Sósa:

Bræðið sykur á pönnu og blandið vatni út í svo úr verði þykk ljósbrún karamellusósa.

Látið hana kólna.

Þeytið rjóma.

Blandið saman karamellu og rjóma.

Njótið!

Ný dögun

laugardaginn, desember 22nd, 2007

Nú, á sexþúsundasta og sjöunda ári ljóssins er fólk enn að mæla því bót að trúarhreyfingar skyldu hafa áhrif í hinum opinbera geira.

Öll frjáls þjóðfélög í dag byggjast á hugsjónum sem urðu til á átjándu öld, öld upplýsingarinnar þegar fólk uppgötvaði fyrst að það var ekki nauðsynlegt að byggja okkar heimspeki, siðfræði, vísindi eða þekkingu á trú; og ríkjandi guðshugmynd meðal menntamanna var sú að Guð hefði skapað heiminn, en ekkert gert eftir það; hann hafi verið einhvers konar miklihvellur, æðsti arkitekt sem smíðaði heiminn, en hefði aldrei síðan skipt sér af honum og væri ekki snertanlegur á nokkurn hátt.

Nú erum við að halda jól. Við ættum því öll að geta komið okkur saman um að hlusta á þetta fallega jólalag, sem segir einmitt að við þurfum að tilkynna dögun nýrrar aldar þegar hjátrúin hverfur og vitringar ráða ríkjum; þegar skynsemin ræður munum við dauðlegir menn verða guðlegar verur.

Þetta er augsýnilega í ríkri andstöðu við kristna guðfræði. Hver ætlar eiginlega að útskýra það fyrir mér?

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video
Bald prangt, den Morgen zu Verkünden
die Sonn auf goldner Bahn,
bald soll der Aberglaube schwinden,
bald siegt der weise Mann.

O holde Ruhe, steig hernieder,
kehr in der Menschen Herzen wieder;
dann ist die Erd ein Himmelreich
und Sterbliche den Göttern gleich
und Sterbliche den Göttern gleich.

Sokkabrúður og tröll

þriðjudaginn, desember 18th, 2007

Ég skil ekki hvernig sumir geta orðið verkdrýgri á veturna. Ég leggst í ástand sem er nær draum en veruleika og á mjög auðvelt með að sofa nokkra sólarhringa í einu. Reyndar gerðist þetta ekki þegar ég bjó í London, en þar kemur eitthvað sem lítur út fyrir að vera dagur jafnvel um vetrarsólstöður.

Mér hefur samt tekist að skipta um dekk á hjólinu mínu, tvisvar meira að segja. Gömlu góðu Nokia-nagladekkin gáfu upp öndina og trosnuðu upp og liðu ekki nema tvær vikur á milli þeirra. Þau voru bara 12 ára gömul.

Mér leiðist að blogga, en ég er þó langt frá því að hætta. Mér finnst hins vegar moggabloggið vera orðið hræðilega þreytt, ekkert nema sokkabrúður og tröll.