Sokkabrúður og tröll

Ég skil ekki hvernig sumir geta orðið verkdrýgri á veturna. Ég leggst í ástand sem er nær draum en veruleika og á mjög auðvelt með að sofa nokkra sólarhringa í einu. Reyndar gerðist þetta ekki þegar ég bjó í London, en þar kemur eitthvað sem lítur út fyrir að vera dagur jafnvel um vetrarsólstöður.

Mér hefur samt tekist að skipta um dekk á hjólinu mínu, tvisvar meira að segja. Gömlu góðu Nokia-nagladekkin gáfu upp öndina og trosnuðu upp og liðu ekki nema tvær vikur á milli þeirra. Þau voru bara 12 ára gömul.

Mér leiðist að blogga, en ég er þó langt frá því að hætta. Mér finnst hins vegar moggabloggið vera orðið hræðilega þreytt, ekkert nema sokkabrúður og tröll.

8 svör við færslunni “Sokkabrúður og tröll”

  1. Þá sagði Kalli:

    Orðið þreytt? Hefurðu ekki kíkt þarna síðan þeir opnuðu búlluna?

  2. Þá sagði Miss G:

    War wirkilega Tuesday í gær? (Af hverju eru dagar og mánuðir á ensku hjá þér?) Og þú hefðir átt að linka á nokkra platbloggara og þursa.

  3. Þá sagði Elías:

    Eitthvað hefur vefþjónninn umturnast við uppfærsluna um daginn.

    Þetta kennir manni að fikta ekki.

    Hvað varðar platbloggara, þá er ég að velta því fyrir mér hvort http://mannvitsbrekka.blog.is/ http://hrodmar.blog.is/ og http://soknarbarn.blog.is/ séu allt sami maðurinn eða hvort sóknarbarnið sé einhver annar náungi, en samt mjög svipaður, einhver hálfþrítugur skólastrákur úr HR sem kann ekki alveg fullkomlega að stæla gömlu kynslóðina því hann einfaldlega skilur ekki orðfæri þeirra nógu vel.

  4. Þá sagði Fríða:

    Ég smellti á þessa tengla og hefði betur látið vera. En ég sé nú ekki alveg af hverju þetta ættu að vera sami maðurinn. Gæti vel verið, en ég held að það sé til meira en nóg af fólki sem skrifar/hugsar svona.

  5. Þá sagði hildigunnur:

    Kannski var þetta einu sinni fyndið en er nú gersamlega búið að ganga sér til húðar.

    Svona 10 - 12 manns á moblo sem eru lesandi, restin er - tja, humm…

  6. Þá sagði baun:

    ekki nenni ég að vera að ergja mig á þessu moggabloggi. sleppi því bara. nóg af fínum bloggurum öðrum.

  7. Þá sagði hildigunnur:

    sko, maður villist stundum þarna og fer að gráta yfir heimsku mannkyns…

  8. Þá sagði Elías:

    http://raudsokkan.blog.is/ er eitt annað tröllið.

Leggðu orð í belg