Ný dögun

Nú, á sexþúsundasta og sjöunda ári ljóssins er fólk enn að mæla því bót að trúarhreyfingar skyldu hafa áhrif í hinum opinbera geira.

Öll frjáls þjóðfélög í dag byggjast á hugsjónum sem urðu til á átjándu öld, öld upplýsingarinnar þegar fólk uppgötvaði fyrst að það var ekki nauðsynlegt að byggja okkar heimspeki, siðfræði, vísindi eða þekkingu á trú; og ríkjandi guðshugmynd meðal menntamanna var sú að Guð hefði skapað heiminn, en ekkert gert eftir það; hann hafi verið einhvers konar miklihvellur, æðsti arkitekt sem smíðaði heiminn, en hefði aldrei síðan skipt sér af honum og væri ekki snertanlegur á nokkurn hátt.

Nú erum við að halda jól. Við ættum því öll að geta komið okkur saman um að hlusta á þetta fallega jólalag, sem segir einmitt að við þurfum að tilkynna dögun nýrrar aldar þegar hjátrúin hverfur og vitringar ráða ríkjum; þegar skynsemin ræður munum við dauðlegir menn verða guðlegar verur.

Þetta er augsýnilega í ríkri andstöðu við kristna guðfræði. Hver ætlar eiginlega að útskýra það fyrir mér?

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video
Bald prangt, den Morgen zu Verkünden
die Sonn auf goldner Bahn,
bald soll der Aberglaube schwinden,
bald siegt der weise Mann.

O holde Ruhe, steig hernieder,
kehr in der Menschen Herzen wieder;
dann ist die Erd ein Himmelreich
und Sterbliche den Göttern gleich
und Sterbliche den Göttern gleich.

7 svör við færslunni “Ný dögun”

  1. Þá sagði Kalli:

    Því miður verður þetta ekki nógu oft endurtekið en þjóðfélag okkar er afkvæmi upplýsingarinnar miklu frekar en kristni. Ástæðan fyrir því að það þarf að endurtaka þetta er sífellt gort og skáldskapur æðstupresta að frá kristni komi allt gott.

  2. Þá sagði Elías:

    Síðan má nefna tvennt sem kom beint úr heiðni, en það eru jólin og svo hið fornnorræna réttarkerfi sem Englendingar tóku upp á dögum Knúts og er grundvöllur engilsaxneskrar réttarhugsunar, sem fól í sér fræ frelsishugsjóna upplýsingarinnar gegnum hugsuði eins og Hobbes og Locke.

    Þegar kristnir reyna að halda því fram að lög okkar séu á einhvern hátt byggð á biblíunni er mjög auðvelt að reka þá lygi beint ofan í þá aftur.

  3. Þá sagði Kalli:

    Vandamálið er að kirkjunnar menn hafa greiðan aðgang í fjölmiðla og hafa svo að segja atvinnu af þessu. Við þurfum að vera duglegri við að reka þetta ofan í þá.

  4. Þá sagði hildigunnur:

    verst að þeir trúa því bara aldrei :(

  5. Þá sagði baun:

    Gleðilegar vetrarsólstöður og farsælt nýtt ár!

  6. Þá sagði Kalli:

    Það er erfitt að deila við fólk sem missti af upplýsingunni.

  7. Þá sagði maggabest:

    Já, gleðilega sólarhækkun og nýtt ártal. Be good!

Leggðu orð í belg