Gleðilegt nýtt ár.
Ég hóf gamlársdag á harðvítugu kvefi. Hugmyndin var sú að við öll systkinin hittumst á Bergstaðastræti hjá móður okkar og með öll okkar börn og kæmum öll með veislumat með okkur. Það hafðist hjá mér að lokum, og fór ég þó einungis með bakaða aligæs með epla-möndlu-bókhveitis fyllingu kryddaða með kanil, negul, múskat og sherry; rjómasveppasósu styrkta með kraftinum úr innmatnum soðnum (Máni fékk innmatinn soðinn og saxaðan í smátt fyrir utan smá lifur sem fór í sósuna) og nokkru af því sem draup af fuglinum í ofninum; heimalagaða trönuberjasósu með púðursykri, kanil, negul, múskat og sherry; rauðkál brasað í púðursykri og balsamediki með kanil, negul, múskat og sherry; og svo soðin rauðrófa bútuð í teninga. Allt sem sagt mjög jólalegt.
Þegar ég var búinn að elda þetta allt var kvefið næstum horfið. Helga kom á bílnum og svo ókum við með herlegheitin og stelpurnar okkar í veisluna.
Maturinn var frábær og þótt minn væri æðislegur þá veittu systkini mín mér harða samkeppni.
Börnin voru mjög æst yfir rakettunum, sprengja meira, sprengja meira, sprengja meira. Eva systir var með mannhæðarháa rakettu með stýrishúsi úr plasti sem virtist vera á annan líter að stærð. Þegar hún og Andy lýstu því yfir að þau ætluðu að skjóta henni upp á Skólavörðuholti urðu stelpurnar óðar og uppvægar að mega fara þangað að sjá það. Við fengum far með Einari bróður uppeftir, sem var reyndar varla nauðsynlegt, þar sem þetta var nú bara í nágrenninu. Þegar á holtið var komið þorði enginn út úr bílnum nema ég og valkyrjan yngri dóttir mín. Loks fundum við Evu og Andy þar sem þau stóðu við kirkjudyrnar. Þessi sena í kring var algert kaos. Fólk kveikti á tertum á miðri stétt milli kirkjunnar og Leifs sem umturnuðust í næstu vindhviðu nokkrum augnablikum síðar og hringsnerust síðan og skutu á mann og annan. Eftir að við fengum loks skilaboð þess efnis að við yrðum þarna ein, ákváðum við að fara aftur niðureftir til mömmu að skjóta úr bakgarðinum þar.
Nú er ég afvelta af áti. Ég vonast til að vera búinn að melta þetta áður en ég vakna í fyrramálið.