Getraun og dægrastyttingar
Ég ætla að byrja hér á stuttri getraun: Hvaða borg er á myndinni?
Extra bónus er fyrir að nefna götuna sem liggur í beina línu upp miðri mynd.
Google Earth er mín helsta dægrastytting þessa dagana, þeas þegar ég er ekki að spila Piano Man eða I’m Not In Love á píanóið og syngja hástöfum með, eða Are You Lonesome Tonight á gítarinn og syngja. Ég er líka stundum að fikta við að fitla við lög með mörgum hljómum og jafnvel syngja með.
Annars er ég mikið að vinna þessa dagana og að reyna að ná af mér ístrunni sem varð gríðarstór á örskömmum tíma nú í sumar. Ég reyni að borða eins lítið og ég kemst af með og næstum bara baunir og grænmeti en fisk örsjaldan. Einnig hjóla ég hvert sem ég fer, jafnvel í þessari færð. Ég fór út að hjóla í hádeginu og var næstum búinn að sprengja mig. Það var gott. Það er þannig sem ég varð næstum þindarlaus og grindhoraður spretthlaupari á nokkrum mánuðum 28 ára gamall, með því að reyna gríðarlega á mig á hjóli stanslaust frá morgni til kvölds alla daga vikunnar (sem hjólreiðasendill í Lundúnum).

19. janúar 2008 klukkan 16:42
Barcelona, Ramblan?
20. janúar 2008 klukkan 9:37
Sidney, Ástralía?
20. janúar 2008 klukkan 11:52
Hvorki er þetta Barcelona né Sydney.
Hér kemur vísbending: þetta er mikið eldri borg.
20. janúar 2008 klukkan 17:27
Aþena? (aldrei komið þangað en liturinn á sjónum er svolítið grískur, eitthvað)
20. janúar 2008 klukkan 19:27
oh. þú hefðir átt að gera eins og ég, að láta myndina heita það sem hún er af, þá hefði ég getað sagt þér hvaða borg þetta er.
20. janúar 2008 klukkan 19:34
Ekki er þetta Marseille?
20. janúar 2008 klukkan 19:40
Reyðarfjörður?
20. janúar 2008 klukkan 19:44
Ekkert af þessu er rétt.
20. janúar 2008 klukkan 20:21
Spurning hvort Helgi Seljan hefur skekkt þá mynd sem baun hefur af Reyðarfirði.
21. janúar 2008 klukkan 8:13
Er þetta ekki Napóli og gata heitir Via Toledo
21. janúar 2008 klukkan 9:08
Það er alveg hárrétt að þetta er Napólí, eins og sjá má á þessari mynd. Gatan heitir hins vegar Via Duomo (Via Toledo liggur skáhallt upp frá miðri mynd yst vinstra megin í átt að miðjunni efst).
Þegar ég setti saman þessa gátu var ég eitthvað ruglaður í kollinum og sýndist að Via Duomo væri hin mjög svo áberandi gata sem nefnist í daglegu máli Spaccanapoli en sé núna auðvitað að svo er ekki. Spaccanapoli liggur í 90° horn við Via Duomo og liggur alveg frá vinstri og langleiðina út að enda til hægri og sést sem dauft beint strik rétt norðan við stóra bláa þakið á Santa Chiara.
21. janúar 2008 klukkan 10:55
heh, maður hefði kannski átt að setja educated guessfídusinn í gang, þarna…
21. janúar 2008 klukkan 15:22
Eða fljúga yfir helstu borgir við Miðjarðarhafið með Google Earth.
23. janúar 2008 klukkan 22:21
Bróðir minn hræddi mig á Google Earth, segir að tölvan mín sé ekki nógu stór og góð fyrir þetta forrit. Er það vitleysa í honum? Ég er með nýja MacBook, ekkert viðbætt minni ennþá…
24. janúar 2008 klukkan 15:31
Tölvan verður að styðja þrívíddargrafík, annars er ekki hægt að nota Google Earth.
29. janúar 2008 klukkan 1:18
Rosa lýst mér vel á megrunraðferðina. Ekki láta smá snjókomu koma í veg fyrir að þú setjist á hjólhestinn. Vittu að það er miklu miklu erfiðara að hjóla á Sprengisandi!
31. janúar 2008 klukkan 8:30
Burt með vömbina….ég meina anarkisti með bumbu er algjört stílbrot.