Archive for febrúar, 2008

Nafn mitt á prenti

föstudaginn, febrúar 29th, 2008

Mig grunar að nafn mitt hafi fyrst sést á prenti í Framsóknarblaðinu í Vestmannaeyjum þann þriðja mars árið 1971:

Geirfuglinn

Hafin er söfnun víða um landið til að kaupa geirfuglinn, sem seldur verður í Englandi í þessari viku. Talið er að 22 stoppaðir geirfuglar séu til. Ísland á engan. Færi því vel á því, að Íslendingar yrðu þess megnugir að kaupa þennan geirfugl sem nú er til sölu.
Hér í Eyjum gangast Rotary-klúbbur Vestmannaeyja og Kiwanisklúbburinn Helgafell fyrir fjársöfnun.
Ungur drengur, Elías Halldór Ágústsson, Fjólugötu 17[sic, var reyndar 19], lét aleigu sína í skotsilfri til kaupa á geirfuglinum. Hann lét allt sem í sparibauknum var. ,,Ísland á að eiga geirfuglinn“, sagði drengurinn við foreldra sína, og afhenti baukinn með innihaldi. Ef menn og konur sýndu örlítið brot af fórnarlund drengsins á Fjólugötu, gæti Ísland auðveldlega eignast geirfuglinn.

Hefur einhver týnt páfagauk?

miðvikudaginn, febrúar 27th, 2008

Ef hann hefur gular og grænar fjaðrir, þá er ég hræddur um að Máni hafi étið hann. Það gæti reyndar hafa verið Keli vinur hans, sem býr í kjallaranum og kemur oft í heimsókn. Í öllu falli sá ég mikið af fíngerðum grænum og gulum fjöðrum á gólfinu, einna líkustum dún. Fyrsti kötturinn sem ég sá er ég kom inn var Keli, þannig að hann gæti hafa haft eitthvað að gera með þetta. Ég held ég lesi Velvakanda næstu daga.

Það var eitt maíkvöld

miðvikudaginn, febrúar 20th, 2008

Quanno vien’a ‘appuntamento
guarde ‘o mare, guard’ ‘e ffronne,
si te parlo nun rispunne,
staje distratta comm’a che.
Io te tengo dint’ ‘o core,
sóngo sempe ‘nnammurato
ma tu, invece, pienze a n’ato
e te staje scurdanno ‘e me…

Quanno se dice: “Sí!”
tiènelo a mente…
Nun s’ha da fá murí
nu core amante…
Tu mme diciste: “Sí!” na sera ‘e maggio…
e mo tiene ‘o curaggio ‘e mme lassá?!

St’uocchie tuoje nun só’ sincere
comm’a quanno mme ‘ncuntraste,
comm’a quanno mme diciste:
“Voglio bene sulo a te…”
E tremmanno mme giuraste,
cu na mano ‘ncopp’ ‘o core:
“Nun se scorda ‘o primmo ammore!…”
Mo te staje scurdanno ‘e me…

Quanno se dice: “Sí!”
tiènelo a mente…
Nun s’ha da fá murí
nu core amante…
Tu mme diciste: “Sí!” na sera ‘e maggio…
e mo tiene ‘o curaggio ‘e mme lassá?!

‘Na sera ‘e maggio eftir Gigi Pisano og Giuseppe Cioffi

Bakverkur

laugardaginn, febrúar 16th, 2008

Síðan ég var nítján ára gamall hef ég orðið rúmliggjandi að minnsta kosti einu sinni á ári vegna bakverks. Í augnablikinu get ég legið, staðið eða gengið, en ég get ekki setið eða beygt mig.

Oftast þykir mér alveg frábært að vera ég, svo frábært að ég er frá mér numinn af alsælu yfir að vera ég sjálfur. En ekki núna.

Afmæli

mánudaginn, febrúar 11th, 2008

Máni

Hann Máni minn er núna orðinn eins árs gamall.

Þessa mynd tók fóstra hans, Eyrún Björk Jóhannsdóttir, af honum bara fjögurra vikna gömlum. Síðan þá hefur margt gerst, hann hefur drepið og étið tvær rottur, týnst í nokkra daga, verið geldur (nokkru fyrir kynþroskaaldur), eignast vini í hverfinu, farið á langt rölt og eignast annað heimili sem ég er ekki viss um hvar er, en hann kemur oft heim angandi af ilmvatni af tegund sem ég tengi yfirleitt við eldri konur.

Enn lasinn

sunnudaginn, febrúar 10th, 2008

augu.png

Rétt fyrir kvöldmatarleytið uppgötvaði ég að hægra augað var orðið eldrautt og leit út eins og ég væri með glóðarauga, sem sést reyndar ekki nógu vel á þessari mynd. Nokkru síðar fékk ég hlustarverk í hægra eyra sem ágerðist. Um níuleytið fór ég á læknavaktina og hitti þar lækni sem taldi þetta vera bakteríusýkingu og afhenti mér lyfseðil upp á Augmentin töflur og Chloromycetin smyrsl.

Nú eru nokkrir tímar síðan ég tók töflu og makaði smyrslinu í augað. Hlustarverkurinn hefur rénað og er nú orðinn skaplegur, en augað er enn blóðrautt.

Fréttir dagsins

laugardaginn, febrúar 9th, 2008

Helsta frétt dagsins sýnist mér vera falleinkunn dómsmálaráðherra í lögum (og orðræðunni).

Annars ætla ég að hætta mér út úr húsi á eftir, sem ég hef ekki gert síðan á þriðjudag, ef undan er skilin ferð til hjúkrunarfræðings í gær til athuga hvort ég væri með streptókokkasýkingu í hálsi, sem reyndist ekki vera.