Enn lasinn

augu.png

Rétt fyrir kvöldmatarleytið uppgötvaði ég að hægra augað var orðið eldrautt og leit út eins og ég væri með glóðarauga, sem sést reyndar ekki nógu vel á þessari mynd. Nokkru síðar fékk ég hlustarverk í hægra eyra sem ágerðist. Um níuleytið fór ég á læknavaktina og hitti þar lækni sem taldi þetta vera bakteríusýkingu og afhenti mér lyfseðil upp á Augmentin töflur og Chloromycetin smyrsl.

Nú eru nokkrir tímar síðan ég tók töflu og makaði smyrslinu í augað. Hlustarverkurinn hefur rénað og er nú orðinn skaplegur, en augað er enn blóðrautt.

11 svör við færslunni “Enn lasinn”

  1. Þá sagði Elías:

    Hlustarverkurinn er algerlega horfinn, en augað er enn rautt.

  2. Þá sagði hildigunnur:

    oj, þetta er ekki fagurt! Vonandi gengur þetta fljótt til baka.

  3. Þá sagði Steinunn Þóra:

    Þetta er andstyggilegt. Ef ég kynni að elda góða góða kjúklingasúpu myndi ég koma með svoleiðis og færa þér. Það kann ég hinsvegar ekki. Gæti þó skotist yfir með minestrone bollasúpu frá Knorr - en ég veit ekki hvort hún myndi hafa sama lækningarmátt.

  4. Þá sagði Elías:

    Kjúklingasúpa er einföld. Þegar fjölskyldan hefur lokið við kjúklingamáltíð safnarðu saman öllum kjöt- og beinafgöngum og sýður í stórum potti í klukkutíma eða tvo. Síðan síarðu súpuna og bætir grænmeti og kryddi eftir smekk út í og hreinsar allt kjöt af því sem þú síar, hendir beinum og brjóski en setur kjötið aftur út í. Að lokum bætirðu við matskeið af maísmjöli eða tapioca sem þú hefur áður leyst upp í bolla af köldu vatni.

  5. Þá sagði Elías:

    Reyndar er augað aftur orðið hvítt, eða svo gott sem.

  6. Þá sagði Elías:

    Og ég er orðinn það hress að við feðginin áætlum að fara á skauta núna rétt á eftir.

  7. Þá sagði Elías:

    Ég breytti þarna mínu eigin kommenti, orðinu “hrísmjöli” í “maísmjöli” því það var það sem ég ætlaði að segja. Annars er sennilega líka hægt að nota kartöflumjöl, en tapioca finnst mér best um þessar mundir. Það fæst, eins og svo margt annað gott, í Mai Thai við Hlemm.

  8. Þá sagði Q:

    Góða skautaferð feðgin! Gott að þú hristir af þér flensuna, annars er þetta nú ekki árennilegt að sjá á myndinni.

  9. Þá sagði ÞóHrefna:

    Þetta er hryllilegt. Ég hefði bókstaflega farið yfirum ef slík sjúkdómseinkenni hefðu sést í mínu andliti. Í alvöru. Miðað við mig, þá var Þórbergur nú bara kettlingur í því að ímynda sér banvæna sjúkdóma.

    En vonandi batnar þér fljótt.

  10. Þá sagði doktor:

    lítur út eins og lithimnubólga. Chloromycetin vinnur ekkert á henni, og ef þetta er ekki orðið gott núna skaltu fara beint á bráðamóttöku og fá viðeigandi dropa.

  11. Þá sagði Elías:

    Þórbergur hefði þríeflst ef hann hefði haft Wikipediu við hendina. Þar sem ég hef nýlega útilokað HIV þá er nýjasta kenningin mín sú að ég sé með Cushing’s syndrome.

    “Lithimnubólga lýsir sér einkum þannig að annað augað verður rautt, fólk á mjög erfitt með að horfa í ljós (ljósfælið), sjónin minnkar oft á auganu og viðkomandi getur fengið verulegan verk í augað.” (af doktor.is). Ég er ekki ljósfælinn, sjónin minnkaði ekki og þessu fylgdi enginn verkur.

Leggðu orð í belg