Afmæli
Hann Máni minn er núna orðinn eins árs gamall.
Þessa mynd tók fóstra hans, Eyrún Björk Jóhannsdóttir, af honum bara fjögurra vikna gömlum. Síðan þá hefur margt gerst, hann hefur drepið og étið tvær rottur, týnst í nokkra daga, verið geldur (nokkru fyrir kynþroskaaldur), eignast vini í hverfinu, farið á langt rölt og eignast annað heimili sem ég er ekki viss um hvar er, en hann kemur oft heim angandi af ilmvatni af tegund sem ég tengi yfirleitt við eldri konur.

11. febrúar 2008 klukkan 9:15
til hamingju með afmælið, Máni
11. febrúar 2008 klukkan 11:07
til hamingju með daginn Máni!
11. febrúar 2008 klukkan 12:06
þvílíkur reynsluheimur að vera köttur! Ýmist rottuveiðar eða hvílt í fangi kvenna er lykta höfgum ilmum….
11. febrúar 2008 klukkan 14:32
Til hamingju með afmælið litli kettlingur!
13. febrúar 2008 klukkan 12:32
Takk fyrir mjög athyglisvert svar á Moggablogginu þínu við fyrirspurninni. Ég var of sein að setja þessa athugasemd þar inn svo ég geri það bara hér. Traust mitt á Kjörkassanum var lítið fyrir - en nú er það ekkert.
23. febrúar 2008 klukkan 12:10
Ojjjjjjj hvað þetta er hrikalega sæt mynd! (Kettlingurinn er svo yfirmátasætur að það hlýtur að snúast upp í andhverfu sína > ojj-ið.)
Til hamingju með Mána og til hamingju með afmælið, Máni
23. febrúar 2008 klukkan 12:45
Eins og eigandi sinn, þá fríkkar hann bara með aldrinum, eins og sjá má á þessari mynd af honum rúmlega hálfs árs gömlum. Hann hefur stækkað eitthvað lítillega og styrkst og eflst að kröftum og viti, en hann lítur samt svona út í dag.
23. febrúar 2008 klukkan 15:13
Ohh, glæsilegur! Vona að hann heimsæki mig (ég nota ekki ilmvatn, bara boddílósjón).
Hér er mín rassatútta, Bangsi.
23. febrúar 2008 klukkan 15:16
Frábær!
Ég tek eftir því að þú hefur ekki enn kveikt á glymskrattanum við efstu færsluna, líkar þér ef til vill ekki tónlist?
23. febrúar 2008 klukkan 18:42
Hvurnig sérðu það? O.O
Habbði ekki tekið eftir fyrirbærinu; kisinn fangaði augun. Skal bæta úr þessu hið snarasta.
23. febrúar 2008 klukkan 18:49
Jú jú, ægileg innlifun þarna á ferð.
12. apríl 2008 klukkan 1:17
æjjj sæt kisa dúllumjásla en jám bra skoða xD
ps:fann þetta á google.is undir ægilega sætir kettlingar:D