Sexy Sadie
miðvikudaginn, febrúar 6th, 2008Maharishi Mahesh Yogi er látinn, aðeins 91 árs að aldri.
Annar Yogi er þó í fullu fjöri, Yogi Björn, en hann lifir að eilífu.
Maharishi Mahesh Yogi er látinn, aðeins 91 árs að aldri.
Annar Yogi er þó í fullu fjöri, Yogi Björn, en hann lifir að eilífu.
Tvennt veldur mér kvöl og pínu þessa dagana: að tala upphátt og að kyngja. Ég hef því ákveðið að gera sem minnst af hvorutveggja.
Ég fór í Skautahöllina með valkyrjunni dóttur minni í dag. Hún var mikið betri en ég þegar við komum á staðinn; ég var eins og nýfæddur kálfur á svellinu og olli almennri hneykslan fyrir öfgakenndar hreyfingar, handapat og örvæntingarfullt afturábakhlaup eins og ég væri nýdottinn út úr sjaplínmynd. Á einum og hálfum klukkutíma tókst mér þó að ná því að fara hring eftir hring á talsverðum hraða, sveigja framhjá öllum öðrum án þess að valda örkumlum og svo að lokum að stöðva ferðina á bara þremur metrum með því að snúa hælnum upp í stefnuna og spreyja íshröngli yfir alla nærstadda.
Við ákváðum að gera þetta á hverjum sunnudegi héðan í frá.
Annað markvert sem komið hefur fyrir mig um dagana er að ég gaf út útgáfu mína af gamalli íslenskri vögguvísu. Ég hef heyrt hana frá blautu barnsbeini (í bókstaflegri merkingu) sem einsöngsmelódíu, en hef alltaf hugsað um hana með þessum hljómum, sem eru gerólíkir öðrum útgefum útgáfum.