Skrýtinn fugl
mánudaginn, mars 31st, 2008Ég er núna að leita dauðaleit að eintaki mínu af bókinni Fuglar Íslands og Evrópu, því ég verð að finna hvaða fugl það var sem ég sá á ferð minni upp með Elliðaánum á laugardag. Þetta var alsvartur sundfugl eða vaðfugl sem leit út eins og mitt á milli himbrima og hegra. Hann hafði mjög sérkennilegt látbragð og var alltaf að setja gogginn niður í bringu og snúa hausnum, sem var þá eins og tár að lögun. Þess í milli teygði hann hálsinn langt út. Goggurinn var mjög þunnur, en mig minnir að hann hafi breikkað út neðst. Ég er ekki viss um að hann hafi verið algerlega svartur, en hann var að minnsta kosti mikið svartari en himbrimi. Hann var líka mikið þokkafyllri í lögun og látbragði en himbrimi; grennri og ávalari, en þó ekki jafn mjór eða jafn langur og hegri. Hann stóð mjög rólegur á bakka lítils lóns eða hóps rétt fyrir ofan litla fossinn sem er rétt hjá þar sem Bústaðavegurinn hittir Breiðholtsbrautina.
