Frábært líf

Trek 4300

Ég fékk peninga úr ekki svo óvæntri átt og gat því endurnýjað hjólakostinn. Ég fór í Örninn, en þaðan fékk ég mín fjögur fyrstu hjól, meðan sú verslun var enn á Spítalastíg 8. Þegar ég loks fékk afgreiðslu (en verslunin var orðin vel full fyrir klukkan tólf) snerist afgreiðslumaðurinn í kring um mig og kom með alls kyns góðgæti aftan úr lager sem var ekki til sýnis í versluninni. Á meðan voru brettin fest á Trek 4300 hjólið sem ég keypti, sjá mynd hér að ofan. Ég keypti líka nýjar hjólabuxur, bæði stuttbuxur og síðbuxur, hanska og hjálm, en hann er þægilegasti hjólahjálmur sem ég hef átt til þessa, og mun ég því sennilega nota hjálm meira héreftir.

Síðan fórum við valkyrjan út að hjóla, en hún fékk sitt fyrsta 26-tommu hjól í afmælisgjöf fyrir 8 vikum en hafði ekki prófað það fyrr en í dag.

Við vorum bæði gagntekin af því hversu góð hjólin voru. Þau eru áþekk hvað stell varðar, en ég held að minn búnaður sé betri.

Allt í einu sé ég eftir því að hafa ekki keypt miða á árshátíð Háskólans í kvöld.

7 svör við færslunni “Frábært líf”

  1. Þá sagði Baldur McQueen:

    Sá tengil á “vélræna hagyrðinginn” á Eyjan.is. Gaman að þessu og takk fyrir að “share-a” með heiminum :-)

    Til hamingju með hjólið.

  2. Þá sagði HT:

    Flott hjól!
    Góða skemmtun.

  3. Þá sagði hildigunnur:

    Til hamingju með hjólið :)

  4. Þá sagði baun:

    til lukku með gæðinginn!

  5. Þá sagði Elías:

    Takk, takk, takk.

    Það er annað við þetta hjól; það er ekki bara besta hjól sem ég hef átt, heldur er það líka stærsta hjólið sem ég hef átt. Það er meira að segja stærra en Peugeot hjólið sem ég átti í London. Myndin af hjólinu hér að ofan er af minna hjóli.

  6. Þá sagði KristínEinarsdóttir:

    sæll Elías og til hamingju með hjólið - trek er einmitt eina vitið og þótt oft sé mikið að gera í erninum eru þau bara svo frábær loksins þegar þau mega vera að því að sinna manni. og nú ættirðu að athuga með hjólaferðir í útlöndum t.d. þær sem uu.is bjóða upp á. takk fyrir upplýsingarnar um tarantelluna/tarantúluna - ég er að skoða dægurlagatexta þar sem sungið er um konur i útlöndum og það er merkilegt finnst mér hvað þær eru flottar og dularfullar en heima er kerling að rífast og þrátta með krakkana átta. kv. Kristín

  7. Þá sagði lindablinda:

    Þú ert…………öðruvísi.
    Happy hjóling! :-)

Leggðu orð í belg