Skrýtinn fugl
Ég er núna að leita dauðaleit að eintaki mínu af bókinni Fuglar Íslands og Evrópu, því ég verð að finna hvaða fugl það var sem ég sá á ferð minni upp með Elliðaánum á laugardag. Þetta var alsvartur sundfugl eða vaðfugl sem leit út eins og mitt á milli himbrima og hegra. Hann hafði mjög sérkennilegt látbragð og var alltaf að setja gogginn niður í bringu og snúa hausnum, sem var þá eins og tár að lögun. Þess í milli teygði hann hálsinn langt út. Goggurinn var mjög þunnur, en mig minnir að hann hafi breikkað út neðst. Ég er ekki viss um að hann hafi verið algerlega svartur, en hann var að minnsta kosti mikið svartari en himbrimi. Hann var líka mikið þokkafyllri í lögun og látbragði en himbrimi; grennri og ávalari, en þó ekki jafn mjór eða jafn langur og hegri. Hann stóð mjög rólegur á bakka lítils lóns eða hóps rétt fyrir ofan litla fossinn sem er rétt hjá þar sem Bústaðavegurinn hittir Breiðholtsbrautina.
1. apríl 2008 klukkan 4:07
Hegrar hafa vetursetu hér. Ég sá einn við Suðurá í Mosfellsdal í vetur og var sagt að þarna væri par sem hefði verið þarna allan veturinn.
Þeir eru víðar hérna á suðvesturhorninu, skilst mér. Meðan þeir hafa nóg að éta, aðallega fisk, þá eru þeir í góðum málum yfir íslenska veturinn. Heldur þú að þetta hafi ekki hreinlega verið hegri?
kveðja, Sveinn.
1. apríl 2008 klukkan 8:13
Jú, það er mögulegt. Ég hef bara ekki enn fundið tegundina. Hann var ekki með neinn topp og hnakkinn var mjög ávalur.
1. apríl 2008 klukkan 10:56
Skarfur? Hegrar eru ekki svartir.
1. apríl 2008 klukkan 11:22
Ég held að maður gæti rétt eins sagt “endur eru ekki svartar” þar sem hegrar eru stór ætt af fuglum. Þessi skarfur er of marglitur og tættur til að geta verið sami fuglinn og ég sá, þótt hann beri sig svipað á vissan hátt. Mig minnir líka að hann hafi verið háfættari.
3. apríl 2008 klukkan 20:03
Ég horfi björtum augum til elliáranna: Café Paris er búið að opna útibú í Kringlunni, svo við Beta vinkona mín komumst auðveldlega á barinn í göngugrindunum. Og hefur vaknað hjá mér von um að Elías bjóði okkur í fuglaskoðunarferðir - með sjónauka og vasapela.
4. apríl 2008 klukkan 7:51
Snilldarhugmynd! Ég myndi sko mæta….
7. apríl 2008 klukkan 15:36
Toppskarfur kannski?
http://aves.is/aves/birds/php/aves.php?famId=7&birdId=17
7. apríl 2008 klukkan 16:01
Það er hugsanlegt.