Bannmerking

Eitt undarlegt atvik sem henti mig áðan fékk mig til að hugleiða flókna spurningu tilvistarlegs eðlis: er hægt að bannmerkja óskráð símanúmer? Eru óskráð númer ekki bannmerkt í sjálfu sér? Jafnvel bannfærð?

Ég er með landlínu, einungis í þeim tilgangi að geta haft ADSL. Ég nota það númer aldrei til neins, enda hringi ég næstum aldrei í neinn nema aðra GSM síma, og vil að fólk hringi einungis í GSM símann minn. Því tel ég það merkisviðburð ef síminn hringir. Það gerðist núna rétt áðan:

*Rrriiinng*

Halló?
- Já góðan daginn [innskot mitt: það var reyndar kvöld], ég er að hringja frá Atlantsolíu og …
Afsakið, en hvar fékkstu þetta númer?
- Uh, við fengum langan lista með númerum, og …
Og hver er yfirmaður þinn?
- Uh, hann heitir Hugi … Hugi … Hreiðarsson, Hugi Hreiðarsson.
Takk fyrir.
- Það var lítið.

*klikk*

Ég sé mest eftir því að hafa ekki notað counterscript í þetta skiptið.

5 svör við færslunni “Bannmerking”

  1. Þá sagði Arngrímur Vídalín:

    Fjandinn, þú máttir nú vara við pdf-inu. Við sem höfum ekki haft rænu á að skipta út Acrobat Reader fyrir betra forrit lendum alltaf í klípu við að opna svona.

  2. Þá sagði Elías:

    Acrobat Reader er ekkert slæmt. Annars er líka til útgáfa á gif-formi.

  3. Þá sagði Kristín í París:

    Ég er með Acrobat og þetta gekk mjög vel og skemmti mér. En sannfærði mig þó um að nota áfram mína aðferð, skella bara á.

  4. Þá sagði Arngrímur Vídalín:

    Ég uppgötvaði pdf-lesara sem tekur ekki sjö mínútur að keyra sig upp í byrjun, eins og Acrobat gerir fokkíng alltaf, en ég hef gleymt hvað það heitir.

  5. Þá sagði hildigunnur:

    ég hvæsi yfirleitt: Þú veist að þú mátt ekki hringja í mig!

    Annars nota ég heimasímann talsvert meira en gsm símann, þar sem við erum í Og1 og heimasíminn er frír (í aðra heimasíma). Gæti verið að þú breyttir um skoðun þegar dóttirin fer að vilja tala við vinkonur svo klukkutímunum skiptir… :P

Leggðu orð í belg