Öllum lokið

Í morgun var ég að fínpússa hið nýja póstkerfi Háskólans sem ég hef verið að hanna undanfarið ár. Í gær og fyrradag fór það í klessu út af villu í veiruskanna sem ég hafði ekki haft ímyndunarafl til að sjá fyrir, en nú virðist þetta vera komið á fínt ról.

Reyndar kemur aldrei neitt fyrir póstkerfið ef ég er nærri. Þegar villan kom upp í fyrrakvöld var ég á vorfagnaði Reiknistofnunar. Eftir að hafa dansað síðan fram eftir nóttu á Hressó fór ég heim með kærustunni og eldaði. Ég á beittan hníf sem ég saxa grænmeti og kjöt með. Mér tókst með naumindum að afstýra að stór partur af nögl löngutangar vinstri handar færi með í réttinn.

fingur.jpg

Mig langar út að hjóla. Ég held ég fari kringum Elliðavatn.

16 svör við færslunni “Öllum lokið”

  1. Þá sagði Arngrímur Vídalín:

    En fór þó þessi hluti í réttinn?

  2. Þá sagði Elías:

    Nei, mér tókst að afstýra því. Fallegur skurður, n’est ce pas?

  3. Þá sagði Kristín í París:

    Mjög fallegur skurður, greinilega góður hnífur. Fékkstu nokkuð póst frá mér úr parisardaman hja free.fr?

  4. Þá sagði Elías:

    Já, alveg rétt, ég var ekki búinn að svara. Þetta gæti verið vegna þess að einhver lítur á free.fr sem upprunastað ruslpósts, en annars veit ég ekki meir. Mínar ruslpóstvarnir byggja mest á vélrænni könnun innihalds, frekar en hvað stendur í From-addressunni.

    Hnífurinn er einn sá besti sem ég hef prófað, en hann keypti ég fyrir rétt rúmar 500 kr í Bónus. Reyndar hafa þessir hnífar hækkað í verði síðan og kosta núna um 1500 kr. Þeir eiga það til að ryðga, en taka annars mjög vel brýningu.

  5. Þá sagði hildigunnur:

    ái, ái, ái!

  6. Þá sagði HT:

    Úff, þar skall hurð nærri þumli!

  7. Þá sagði Miss G:

    Já, það borgar sig ekki að munda eldhússveðjur eftir 18 bjóra og 12 ópalskot. Ég hef sem sagt smakkað mannakjöt núna, er ég alveg 100% viss um.

  8. Þá sagði Elías:

    Þú hefur oft smakkað mitt kjöt.

  9. Þá sagði Miss G:

    Já, nei. Þetta var ekkert venjulegt svín.

  10. Þá sagði Elías:

    Rembusvín?

  11. Þá sagði Miss G:

    Nei, ofur. ;;)

  12. Þá sagði Miss G:

    Eða - Pigs in Spaaaaaaace.

  13. Þá sagði Eðla:

    Á þessum krepputímum þarf auðvitað að sýna ráðdeild og sparnað, og því ekkert athugavert við að drýgja mat á þennan hátt

  14. Þá sagði baun:

    óhuggulegt. gerist þetta oft þegar þú eldar? (hef alveg sérstakar ástæður til að spyrja)

  15. Þá sagði Elías:

    Þetta hefur gerst nokkrum sinnum en aldrei áður hef ég skorið svo stóran bita frá.

  16. Þá sagði hildigunnur:

    ég skar einu sinni bita sem lenti í salatinu og ég fann hann ekki. Ekki nögl, samt… :P

Leggðu orð í belg