Góð þjónusta
fimmtudaginn, maí 29th, 2008Í fyrradag ætlaði ég að hjóla mér til hressingar upp í Elliðaárdal eftir vinnu. Þegar ég var kominn hálfa leið til Nauthólsvíkur uppgötvaði ég að vinstri sveifin var farin að rása til. Eftir stutta athugun sá ég að skrúfan var orðin laus og pedalasveifin með. Ég hjólaði hægt með öðrum fæti niður á N1 þar sem ég fékk lánaðan 8mm sexkant. Ég herti þetta duglega og hélt síðan áfram. Þegar ég var kominn að Víkingsheimilinu fann ég að þetta var aftur að losna. Ég hélt því áleiðis norður á bóginn, til að heimsækja bróður minn sem eflaust ætti verkfæri. Við Pizza Hut við endann á Bústaðavegi hitti ég hóp af vel útbúnu fjallahjólafólki sem var með 8mm sexkant meðferðis. Ég herti aftur og hélt áfram. Þegar ég var kominn í Skipasund til bróður míns var sveifin aftur orðin laus. Þar fékk ég lánað topplyklasett og herti svo um munaði. Síðan fór ég heim.
Daginn eftir kom ég við í Borgarhjólum á leið minni í vinnuna. Kallinn í Borgarhjólum leit á þetta, herti eins og hann gat og sagði að sennilega þyrfti að skipta um þetta allt og að þetta væri inni i ábyrgðinni hjá Erninum. Ég hjólaði því þangað eftir vinnu. Þeir sögðu að þetta væri þekkt vandamál og kæmi stundum fyrir, en einhvern veginn hafði ég það á tilfinningunnni að þetta kæmi bara fyrir fólk eins og mig sem stendur á pedulunum eins og Mongóli í ístöðum.
Síðan labbaði ég til afa og spjallaði við hann um hleranir, en hann var nr 28 á listanum sem var birtur í Morgunblaðinu. Hann sagðist ekki þurfa neina afsökunarbeiðni; hann vorkenndi þessum aumingjum og mættu þeir hvíla í friði.
Ég þurfti að vinna um nóttina og tók því frí til hádegis. Fyrir klukkan 10 fékk ég síðan SMS frá Erninum þar sem þeir sögðu að hjólið væri tilbúið og kostnaður minn væri enginn. Þegar ég sótti það sögðu þeir mér að nýi öxullinn væri langtum sterkbyggðari en sá gamli.
Mér finnst núna eins og þetta sé alveg nýtt hjól.