Muezzin

Ég vaknaði klukkan fimm í morgun við muezzin að kyrja rétt fyrir utan gluggann minn, eða svo fannst mér. Það fyrsta sem kom upp í kollinn á mér var “Hvað er hann Stefán að gera nú?” eins og ég ætti ekki aðra nágranna. Ég fór að velta fyrir mér hvort Vantrú væri farin að framkvæma hugmyndina sem ég viðraði við vini mína á #atheism um daginn, að eina leiðin til að losna við ónæði af kirkjuklukkum væri að búa til meira ónæði sem muezzin og neyða með því yfirvöld til að banna allt trúarlegt ónæði. Svo fannst mér eins og hljóðið dofnaði eins og í fjarlægð og fór þá að velta því fyrir mér hvort einhver hefði verið með megafón í bíl að keyra um hverfið.

Svo núna áðan var ég að sjá þetta.

Valkyrjan dóttir mín segir að ég ætti að vera í Útsvari, ég myndi rúlla þeim öllum upp.

7 svör við “Muezzin”

  1. hildigunnur says:

    hehe, þetta er sagt við Jón Lárus að minnsta kosti einu sinni í hverjum Útsvarsþætti :D

  2. Elías says:

    Ég meina, er einhver sem ekki þekkir Lara’s Theme eftir Maurice Jarre úr Doctor Zhivago eftir David Lean eða veit ekki að tónlistin í Aleksandar Njefskíj er eftir Prókofíeff?

  3. HT says:

    Ég bjó við hliðina á mosku í mánuð seinasta haust.
    Trúðu mér, það er ekki um að villast þegar köllin byrja!

  4. Elías says:

    Kannski hefði það verið flottara ef hann hefði útvarpað Lara’s Theme …

  5. Elías says:

    Ég meina, Lara’s Theme er eins og blautur draumur frjálshyggjumannsins; þema frjálsrar sálar sem kommúnisminn fær ekki bugað en öðlast eilíft líf í gegnum endalausar lyftutónlistarútsetningar.

    Finnst nokkuð betra andsvar við kyrjan muezzinsins?

  6. Elías says:

    Sem, nota bene, mér fannst alger snilld, og þrátt fyrir pirran og ergelsi mitt fyrir að vera vakinn klukkan fimm að morgni laugardags, þá gat ég ekki annað en dáðst að hinni innri fegurð stefsins og flutningsins.

  7. Elías says:

    Það sem flaug svo í gegnum hugann var: af hverju var þetta ekki í My Life in the Bush of Ghosts?

Leggðu orð í belg