Yfirlýsing
Ég lýsi því yfir að sumarið er komið.
Að minnsta kosti er ég farinn að ganga um í stuttbuxum.
Mitt borgaralega hjarta hefur stundum flöktað yfir því lúxusvandamáli að það er ekki nóg af utanhúss tennisvöllum í þessari borg, sérstaklega ekki í eldri hlutanum. Hins vegar er viss stemning yfir því að hjóla vestur inn í sólarlagið að afloknum degi á tennisvellinum.
3. maí 2008 klukkan 22:17
Mér finnst í rauninni afskaplega lítið gert fyrir íbúana í eldri hluta borgarinnar, ekki síst börnin. Hvers vegna er til dæmis ekki búið að útbúa barnvæna útisundlaug við hlið Sundhallarinnar?
3. maí 2008 klukkan 22:26
Reyndar er kominn blakvöllur á Klambratúni. Tennisvöllur er örlítið stærri, þarf reyndar net í kring, en er að öðru leyti lausari við viðhald.
4. maí 2008 klukkan 8:54
Stendur ekki alltaf til að búa til útilaug við Sundhöllina, að sunnan? Eða er hætt við?