Tónleikar

Ég fór á þessa tónleika í gærdag. Mér finnst þetta frábært fyrir bara níu ára stelpu sem hefur bara spilað í einn vetur, þrátt fyrir að hún fipast tvisvar og hljóðfærið er stillt kannski tæpan kvarttón of lágt.

Í öðrum fréttum er það helst að móðurafi minn, Stefán Bjarnason verkamaður, er 98 ára í dag. Stefán fæddist í Ölversholti í Hraungerðishreppi segir Íslendingabók, en ég hélt alltaf að hann hefði fæðst á Hæli í Núpssókn eins og bróðir hans Brynjólfur ráðherra og heimspekingur. Hann ber árin vel og er duglegari að sækja barinn en ég.

2 svör við færslunni “Tónleikar”

  1. Þá sagði baun:

    glæsilegt hjá þeirri stuttu! saxinn er ekki auðvelt hljóðfæri.

  2. Þá sagði hildigunnur:

    flott hjá henni :)

    og til hamingju með afa þinn!

Leggðu orð í belg