Veislan

Þegar maður er 98 ára og hefur gaman að veislum eru öll afmæli stórafmæli.

Stelpurnar spiluðu fyrir afa, bæði saman og í sitthvoru lagi, og hlutu gríðarlegt lof fyrir. Afmælissöngurinn var sunginn með saxófónundirleik. Andrea söng með undirleik þessara gaura. Birna fór í splitt. Eftir að við fórum hélt afmælisbarnið af stað í partí. Ég hitti hann síðan um hádegið daginn eftir þar sem hann var hress eins og vanalega.

Daginn eftir fór ég í langan hjólatúr, enda þarf maður nauðsynlega að svitna vel öðru hvoru. Ég hjólaði upp með Elliðaám að stað ekki langt frá hesthúsabyggðunum þaðan sem ég gat bæði séð Elliðavatn og Rauðavatn. Á heimleiðinni hjólaði ég gegnum Breiðholt, bæði efri og neðri. Mér finnst þessir staðir vera farnir að líta út eins og verstu slömm. Víða má sjá yfirgefnar verslunarmiðstöðvar sem líta út eins og draugaborgir sem tíminn hefur gleymt. Ég tók eftir því að enn eru flestir göngu- og hjólastígar austan Breiðholtsbrautar ósópaðir eftir veturinn. Er þetta kannski vegna þess að þjónusta borgarinnar á ekki að vera fyrir öreiga og þess háttar annars flokks borgara? Það er svo einkennilegt að það virðist sem að það sé hægt að moka sandi á alla stíga á einni nóttu, en svo tekur marga mánuði að sópa þá. Á meðan eru þessir stígar stórhættulegir.

<kaldhæðni>
Ef peninga til gatnamála skortir, þá mætti kannski fá sterkefnuð stórfyrirtæki til þess að styrkja þennan málaflokk gegn því að öðlast ódauðleika og eilífa auglýsingu með því að fá götur á höfuðborgarsvæðinu nefndar eftir sér. Microsoft gæti t.d. fengið örnefnin Windowshlíð og Gateskór.
</kaldhæðni>

4 svör við færslunni “Veislan”

  1. Þá sagði Kristín í París:

    Afinn hljómar vel, svona stefni ég á að verða.
    Mér fannst stórundarlegt að eiga erindi í Neðra Breiðholt fyrir ca ári síðan. Æskuslóðir, blómstrandi viðskipti með vefnaðarvöru, ritföng, pósthús þar sem alltaf var nóg að gera, apótek og bara allt sem þurfti. Allt horfið og tótal desolation í staðinn.
    En ég fer ekki ofan af því að Breiðholtið er fallegt og verður áreiðanlega tískuhverfi bráðum og ég myndi áreiðanlega flytja þangað ef ég flytti aftur heim (auðvelt að segja svona).

  2. Þá sagði Arngrímur Vídalín:

    Ég styð örnefnið Windowshlíð, þar mætti hafa kristilegar íhaldsbúðir. Sömuleiðis finnst mér umtalsverður skortur á Svarthöfða.

  3. Þá sagði Elías:

    Einhvers staðar verða vondir að vera.

  4. Þá sagði Eðla:

    Þú ert hér með kosinn í götunafnanefnd!

Leggðu orð í belg