Stuttbuxnaveðrið
Ég hef núna gengið um í stuttbuxum undanfarnar þrjár vikur (og svo hjólastuttbuxum innanundir). Þessi reynsla mín hefur kennt mér að veðrið hér á Íslandi verður næstum aldrei of kalt fyrir stuttbuxur, sem eru alla jafna mikið þægilegri en síðbuxur. Þá fór ég að velta því fyrir mér, hvers vegna ekki ganga um í kilti?
Fást þau ekki í Dressmann eða Hagkaupum?
20. maí 2008 klukkan 14:05
Ég á kilt. Geng sjaldan í því á almannafæri reyndar.
20. maí 2008 klukkan 14:06
Hvaða tartan?
20. maí 2008 klukkan 14:13
Ég keypti mér nokkra kjóla á Indlandi í haust.
Með hækkandi sól verða þeir raunhæfir kostir…
20. maí 2008 klukkan 14:29
Kjóla!!!
Fuss og svei. Þú mátt ganga í pilsi eða kjól eða sari eða þannig. Ég er hins vegar karlmenni og geng um í kilt eða toga.
20. maí 2008 klukkan 14:38
Karlmennska mín stendur vel undir kjólaburði!

20. maí 2008 klukkan 16:31
Karlmenn í kjólum! Það getur verið fallegt.
20. maí 2008 klukkan 19:18
Ég skil ekkert í karlmönnum að vera ekki meira í kjólum eða serkjum eða toga eða hvað sem tippalingar vilja kalla svona góðar flíkur.
20. maí 2008 klukkan 20:21
Ég er sammála þér Elías. Það er alltaf hægt að vera í stuttbuxum ef maður er ekki kuldaskræfa almennt. Ef það er kalt í lofti þá er bara að setja á sig húfu og/eða fara í lopapeysu, en síðbuxur eru algjör óþarfi. Hins vegar er ég of mikil dama (eða kjéllíng) til að vappa um í stuttbuxum á almannafæri (er bara í svoleiðis flíkum í eigin garði).
21. maí 2008 klukkan 14:09
Æi, strákar….
21. maí 2008 klukkan 14:22
Hvað?
21. maí 2008 klukkan 16:59
….það er eitthvað kauðalegt við karlmenn og pils….og af hverju að vera að fela sterkleg læri og stinna rassa undir pilsföldum? Nei takk!
27. maí 2008 klukkan 18:28
Kilti fá hjá
Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar Kjörgarði
Laugavegi 59