Ákvörðun

Ég hef ákveðið að fara á Drekktu betur á eftir, án þess þó að hafa orðið mér úti um makker, en tveir eru í liði hverju.

Makkerinn þarf bara að kunna að skrifa, en ég er sem næst óskrifandi.

4 svör við færslunni “Ákvörðun”

  1. Þá sagði Grúsja:

    Nú mig ekki skilja

  2. Þá sagði hildigunnur:

    fórstu?

  3. Þá sagði Elías:

    Ég fór, hitti einhverja eldri dömu sem var heldur ekki í neinu liði (en samkvæmt reglum keppninnar þurfa að vera tveir í liði), náði reyndar ekki nema 10 stigum (minnir mig). Það var þó betra en liðið sem sat við hlið okkur, en það var Óli Sindri. Verst fannst mér að svara á einum stað Hush, Hush, Sweet Charlotte þegar hið rétta svar var What Ever Happened to Baby Jane? (tvær kvikmyndir með nákvæmlega eins plotti, báðar frá fyrri hluta sjöunda áratugarins og báðar leikstýrðar af Robert Aldrich með Bette Davis í aðalhlutverki).

  4. Þá sagði Óli Sindri:

    Enda lýsi ég almennu frati á spurningar þessa tiltekna kvölds. Mig minnir reyndar að þið hafið verið með 11 stig, ekki 10. Sigurliðið (-liðin) hafði 17. Verst var að ég staldraði við eftir bráðabananum og komst að því að ég gat svarað öllum fimm spurningunum í honum.

Leggðu orð í belg