My recipes, let me show you them …
Stundum verður mér á að búa til ágætis rétti alveg upp úr þurru. Hér er einn sem ég er kominn með æði fyrir í seinni tíð
Þorskur í vatni
- 2 l vatn
- 2-3 þorskbitar
- 1 stór hnúður af engifer
- 1-10 chili
- 2-4 gulrætur
- 5-10 sveppir
- Hálfur kúrbítur
- 3 matskeiðar af ostrusósu
- Lítið búnt af kóríander
Vatnið er sett í pott og kveikt undir og stillt á hæsta. Tveir þorskbitar eru settir ofan í, best er að setja þá beint úr frysti. Engiferinn er saxaður í mjög smátt og fer út í. Chili sömuleiðis, síðan gulrætur í þunnar sneiðar, sveppir í sneiðar. Þegar þetta hefur bullsoðið í 10 mínútur eftir að síðasti sveppabitinn fór út í fer kúrbíturinn út í, saxaður í aðeins stærri bita en hitt. Þetta er látið bullsjóða í nokkrar mínútur til viðbótar. Síðan er þriðji þorskbitinn settur út í og látið sjóða í 2 mínútur en þá er ostrusósu bætt út í og látið sjóða í fimm mínútur til viðbótar. Síðan er slökkt undir og kóríanderinn er saxaður í smátt og hent út á súpuna rétt áður en hún er borin fram.